Real Madrid og Atletico Madrid eigast við þessa stundina en leikið er í Ofurbikar Evrópu í Eistlandi.
Staðan er 1-1 þessa stundina en Diego Costa kom Atletico yfir áður en Karim Benzema jafnaði metin.
Einn stuðningsmaður Real vakti athygli í kvöld en hann mætti í treyju liðsins merktri Loris Karius.
Karius er vinsæll hjá stuðningsmönnum Real eftir tvö mistök í úrslitum Meistaradeildarinnar í maí.
Karius missti í kjölfarið sæti sitt í byrjunarliði Liverpool en félagið keypti Alisson frá Roma í sumar.
Eins og má sjá er treyjan merkt Karius og er hún númer 13. Real hefur fagnað sigri í Meistaradeildinni 13 sinnum.