Andres Iniesta, fyrrum leikmaður Barcelona, vakti athygli á dögunum er hann skoraði magnað mark fyrir lið Vissel Kobe í Japan.
Iniesta gekk í raðir Kobe fyrr í sumar eftir magnaðan feril hjá Barcelona þar sem hann vann 32 titla.
Spánverjinn skoraði sitt fyrsta mark fyrir Kobe nýlega sem var frábært en annað mark hans var ekki mikið verra.
Iniesta skoraði annað mark sitt fyrir liðið í nótt en hann smellhitti boltann fyrir utan teig í 1-1 jafntefli við Sanfrecce Hiroshima.
Markið má sjá hér.
Don Andrés Iniesta showing how to play football in Japan.
Great goal by Iniesta ??? pic.twitter.com/hLtbTfn6NU
— BarcaTimes Media (@BarcaMediaAcc) 15 August 2018