

Grínistinn Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi, fékk í gærkvöldi ansi freistandi tilboð frá karlmanni sem vildi ólmur fara á stefnumót með grínistanum geðþekka. Steindi birti tilboðið frá manninum sem er erlendur á Instagram-síðu sinni og hyggst hugsa það vandlega. Sjáðu tilboðið hér að neðan.
„Hæ. Elska þáttinn þinn og þú ert maður sem ég myndi ekki hika við að fara á stefnumót með. Afklæðumst og fáum okkur sundsprett á Þingvöllum,“ segir í tilboðinu frá manninum.
Steindi er kurteis piltur og ætlar ekki að kasta tilboðinu frá sér strax ef marka má þann texta sem hann skilur eftir á Instagram. „Fáránlega freistandi tilboð frá erlendum karlmanni. Mun hugsa þetta vandlega,“ skrifar Steindi.
