Nú þegar aðeins er liðin rétt rúm vika frá því fótboltadrengjunum tólf og þjálfara þeirra var bjargað úr helli í norðurhluta Taílands er búið að tilkynna um sex kvikmyndir, þar á meðal eina heimildarmynd. Það er bandaríska blaðið Variety sem greinir frá þessu.
Vegna áhugans hefur taílenska ríkisstjórnin skipað nefnd til að fylgjast með gangi mála. „Fimm alþjóðleg fyrirtæki hafa óskað eftir því við utanríkisráðuneytið að gera bíómynd og heimildarmynd um björgunaraðgerðirnar,“ segir menningarmálaráðherra Vira Rojpojchanarat.
Alþjóðasamfélagið fylgdist grant með gangi mála þegar drengjunum var bjargað úr hellinum hver af öðrum, í fylgd sérþjálfaðra kafara. Drengirnir dvöldu í hellinum í 17 daga en þeir komust allir heilir á húfi út.
Ein þeirra kvikmynda sem byrjað er að vinna að verður í leikstjórn hins taílenska-írska Tom Waller. Sú mynd mun að sögn Waller fjalla um sögur þeirra sem stóðu að björgunaraðgerðum á svæðinu og sýn drengjanna á atburðinn.
„Strákarnir höfðu ekki hugmynd um að heimsbyggðin væri að fylgjast með þeim. Þeir héldu reyndar að þegar þeir kæmust út þyrftu þeir að hjóla heim til sín,“ sagði Waller í samtali við Variety.