fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Hamrahlíðarkórinn flytur ljóð Laxness á Gljúfrasteini

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 21. júlí 2018 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur mun fylla Gljúfrastein af æsku og söng þegar hann kemur fram í fyrsta sinn í stofunni í húsi skáldsins á morgun, sunnudaginn 22. júlí.

Á efnisskránni má finna lög eftir Jóhann G. Jóhannsson, Jón Þórarinsson, Gunnar Reyni Sveinsson og Atla Heimi Sveinsson við ljóð Halldórs Laxness.

Kórinn undirbýr nú ferð til Tallin í Eistlandi á virtustu og stærstu kórahátíð Evrópu, Europa Cantat.  Það verður í 13. skipti sem Hamrahlíðarkórinn tekur þátt í hátíðinni, alltaf með nýjum, ungum kórfélögum.

Hamrahlíðarkórinn var stofnaður árið 1982 og hefur um áratugaskeið verið í fararbroddi íslenskra æskukóra. Stofnandi kórsins og stjórnandi frá upphafi er Þorgerður Ingólfsdóttir.

Stofutónleikarnir eru haldnir hvern sunnudag til 26. ágúst og hefjast þeir kl. 16. Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og kosta 2.500 kr. Ókeypis er fyrir börn á leikskólaaldri.

Dagskrá stofutónleikanna í heild sinni.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Slæm tíðindi fyrir Vestra

Slæm tíðindi fyrir Vestra
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Hlaut dóm eftir óhugnanlegt atvik í miðjum Covid-faraldri – Óvíst hvort þolandinn nær sér

Hlaut dóm eftir óhugnanlegt atvik í miðjum Covid-faraldri – Óvíst hvort þolandinn nær sér
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Sjaldséð sjón: Unglingsdætur Nicole Kidman og Keith Urban mættu með foreldrunum

Sjaldséð sjón: Unglingsdætur Nicole Kidman og Keith Urban mættu með foreldrunum
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Landlæknir í stríð við Persónuvernd og gerir alvarlegar athugasemdir við starfshættina

Landlæknir í stríð við Persónuvernd og gerir alvarlegar athugasemdir við starfshættina