Ísey skyrið er nú framleitt í Rússlandi en verksmiðja á vegum MS, Kaupfélags Skagfirðinga og Icepro opnaði í rússnesku borginni Veliky Novgorod í seinasta mánuði. Íslenska skyrið hefur aldrei áður verið fáanlegt í þarlendum matvöruverslunum og það verður því spennandi að sjá hvernig Rússar munu taka þessari nýjung. Stuðningsmenn íslensku knattspyrnunnar koma við sögu í markaðsetningu skyrsins í Rússlandi og heiðra menningu landsins með því að kyrja saman rússneskt þjóðlag.
Auglýsingin leggst greinilega vel í Rússa sem í kjölfarið tóku sig til og framleiddu svipað myndband þar sem íslenska lagið Á Sprengisandi er sungið á bæði rússnesku og íslensku. Sjón er sögu ríkari.
https://www.youtube.com/watch?time_continue=82&v=Q-9FQg9IMrA