fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Guðlaugur fundaði með utanríkisráðherra Japans

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 29. maí 2018 23:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fundaði í dag með Taro Kono, utanríkisráðherra Japans, í Tókýó. Fundurinn er hápunktur fjögurra daga vinnuferðar ráðherrans til Japans sem er hans fyrsta ferð til Asíu eftir að hann tók við embætti. Með ráðherra í för er viðskiptasendinefnd skipuð hátt í þrjátíu fulltrúum íslenskra fyrirtækja.

„Það er hvatning að finna þennan mikla áhuga á auknum viðskiptum milli Japans og Íslands. Ég legg áherslu á að utanríkisþjónustan greiði götu íslenskra fyrirtækja erlendis og þessi ferð er liður í því. Á fundi mínum með japanska utanríkisráðherranum ítrekaði ég áhuga íslenskra stjórnvalda á því að dýpka samstarf ríkjanna enn frekar á öllum sviðum, ekki síst viðskipta,”

sagði Guðlaugur Þór.

Á fundi sínum staðfestu ráðherrarnir samkomulag um tímabundin atvinnuréttindi ungs fólks. Ráðherrarnir fögnuðu einnig undirritun tvísköttunarsamnings landanna í janúar sl. sem kemur til framkvæmda á þessu ári og mun greiða fyrir viðskiptum og fjárfestingum milli landanna. Þá ítrekaði Guðlaugur Þór áhuga íslenskra stjórnvalda á að hefja samningaviðræður við Japan um gerð loftferðasamnings og fríverslunarsamnings.

Ráðherrarnir voru sammála um að efla samstarf á sviði viðskipta- og menningarmála, sem og á sviði norðurslóðamála. Tara Kono, utanríkisráðherra, stefnir á að þiggja boð um að vera ræðumaður á Hringborði norðurslóða næsta haust. Ráðherrarnir ræddu einnig þróun mála í Asíu, m.a. ástand mála á Kóreuskaga, og mikilvægi þess að tala áfram fyrir frjálsum viðskiptum innan alþjóðaefnahagskerfisins.

Í gær ávarpaði ráðherra fjölmennt viðskiptaþing þar sem Íslandsstofa og íslensk fyrirtæki kynntu hátt í 200 gestum úr japönsku viðskiptlífi starfsemi sína á sviði endurnýjanlegrar orku, ferðaþjónustu og sjávarútvegs- og landbúnaðarmála. Viðskiptaþingið var skipulagt af Íslandsstofu og JETRO, japanskri systurstofnun hennar, í samstarfi við Japansk-íslenska og Íslensk-japanska viðskiptaráðið, Viðskiptaráð Íslands og sendiráð Íslands í Tókýó.

Ráðherra fundaði einnig með mennta- og menningarmálráðherra og þingmönnum úr vinafélagi Íslands á japanska þjóðþinginu. Þá heimsótti hann fjölmörg japönsk samstarfsfyrirtæki íslensku fyrirtækjanna og var viðstaddur undirritun nýrra viðskiptasamninga. Fyrr í dag var hann sérstakur gestur hins virta blaðamannafélags Japan National Press Club þar sem öryggismál á Norður-Atlantshafi og málefni norðurslóða voru rædd.

Framundan eru m.a. fundir með landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, dómsmálaráðherra og aðstoðarsamgöngumálaráðherra Japans.

Ræða ráðherra á viðskiptaþingi Íslandsstofu og JETRO
Ávarp ráðherra á fundi Japan National Press Club

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð