fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Kynning

Matstöðin býður upp á kræsingar alla daga: Er þetta best geymda leyndarmálið í Kópavogi?

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 29. maí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað dettur svöngum manni helst í hug þegar hann rekur augun í lítinn söluskála hjá bensínstöð við hraðbraut? Væntanlega að þar megi fá sér samloku eða pylsu, hugsanlega brasaðan hamborgara? Við erum stödd á Kópavogsbraut 115, það er nóg bensín á bílnum, en ökumaður og farþegi eru með tóman maga og er farið að hungra í góðan hádegisverð.

Þegar betur er að gáð sést að litli söluskálinn er ósköp snotur í útliti og það eru borð og bekkir úti á planinu sem væntanlega nýtast vel á góðviðrisdögum en þennan dag er slagviðri. Þegar inn er komið blasir við eitthvað allt annað en sjoppufæði: hlaðborð af dýrindis mat.

Þetta var á þriðjudegi og í borðinu voru þrír aðalréttir: Grillaður kjúklingur, mexíkóskt lasagna og þorskur í hvítlauksmarineringu. Í borðinu er síðan viðeigandi og girnilegt meðlæti á borð við franskar kartöflur, sætkartöflur, hýðiskartöflur, gott úrval af grænmeti, sósur og margt fleira.

Annar hinna svöngu förumanna hélt sig við kjúkling og franskar og lofsamaði vel heppnaða kryddun á fuglinum. Hinn fékk sér sitt lítið af hverju, þorski, lasagna, kjúklingi og alls konar meðlæti. Allt saman var ótrúlega bragðgott og jafnvel betra en maturinn hennar mömmu þó ég myndi aldrei segja henni frá því.

Hádegisverður af þessu tagi kostar aðeins 1.890 krónur sem er eins og verð á hamborgaramáltíð í ódýrari kantinum. Þegar litið er yfir matseðil vikunnar sem birtur er með áberandi hætti á vegg til hliðar við hlaðborðið má sjá að það eru girnilegar steikur á boðstólum dag eftir dag: purusteik, kótelettur, lambalæri og alls kyns aðrar kræsingar.

Hvers vegna hefur enginn sagt mér frá þessum stað? Þetta hlýtur að vera best geymda leyndarmálið í Kópavogi og þó víðar væri leitað.

Heimasíða Matstöðvarinnar

Facebook-síða Matstöðvarinnar

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
10.11.2025

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði

Kjörbúðirnar lækka verð – 200 vörur á Prís verði
Kynning
26.10.2025

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld

Vetrartískan er komin: Hlýr yfirfatnaður, gæðastígvél og notaleg kósýkvöld
Kynning
02.09.2025

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ
Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
28.12.2024

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum