Liverpool hefur ákveðið að hætta við að spila við Borussia Monchengladbach á undirbúningstímabilinu.
Liverpool Echo greinir frá þessu í dag en Gladbach hefur verið í umræðunni síðustu daga.
Liðið villmikið fá ungstirnið Rhian Brewster frá Liverpool en þeir rauðu vilja ekki missa leikmanninn.
Brewster gæti fengið fleiri tækifæri hjá Gladbach en Liverpool vill þó sjá hann skrifa undir atvinnumannasamning á Anfield.
Það andar köldu á milli liðanna að svo stöddu og hefur Liverpool aflýst vináttuleik sem átti að vera spilaður í sumar.