Umboðsmaður Jonny Evans vill fá fjórar milljónir punda í vasan ef hann gengur í raðir Leicester City.
Frá þessu er greint í dag en Leicester vinnur nú í því að fá Evans frá West Bromwich Albion.
West Brom féll úr ensku úrvalsdeildinni sem þýðir að Evans er fáanlegur fyrir þrjár milljónir punda.
Umboðsmaður Evans, Colin Murdock, er þó að tefja hlutina vegna upphæðarinnar sem hann vill fá fyrir skiptin.
Umboðsmenn eru byrjaðir að taka mikið fyrir sölur á leikmönnum og má nefna Mino Raiola sem fékk 40 milljónir punda eftir sölu Paul Pogba til Manchester United.
Murdock vill fá fjórar milljónir fyrir að koma samningum í höfn sem gæti kostað Leicester leikmanninn.