
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leggur áherslu á nýja utanríkisstefnu.
Samt virðist utanríkispólitík Íslands helst miða við framboðið til Öryggisráðið. Nú er búið að planta Svavari Gestssyni niður í Afríku til að vinna að framboðinu.
Þetta er náttúrlega ekki ný utanríkisstefna heldur arfur frá fyrri ríkisstjórn.
Aðallega frá Halldóri Ásgrímssyni.
Nú má vera að innan stjórnkerfisins sé spenna fyrir þessu framboði, en ég held að almenningi sé slétt sama.
Og sé eiginlega frekar á móti þessu ef framboðið þýðir að við þurfum að sýna harðstjórum vinarhót.