fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Orkuævintýrin halda áfram

Egill Helgason
Mánudaginn 7. apríl 2008 17:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

dj-map.gif

Í Djíbútí er atvinnuleysi sextíu prósent, lífslíkur karla eru 42 ár, landið er stórskuldugt og getur ekki staðið í skilum með afborganir, þarna hefur geisað borgarastríð, efnahagurinn hefur verið á stöðugri niðurleið síðustu tíu árin.

Þetta er smáríki, klemmt milli Sómalíu og Eritreu, en í báðum þeim löndum er stríðsástand.

Nú er Össur Skarphéðinsson á leiðinni þangað að ganga frá samstarfi við Djíbútímenn í jarðhitamálum – síðast var hann í öðru fjarska óstöðugu landi, hann slapp úr eldflaugaarás í Jemen, eða það má skilja af fréttum fjölmiðla.

Björn Bjarnason sagði um þessi áform í grein um REI málið í síðasta hefti Þjóðmála:

„Í grein minni í síðasta hefti Þjóðmála vék ég að því, þegar þeir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, stóðu á palli með Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York, þar sem Clinton heiðraði þá fyrir að lofa 8 til 9 orkumilljörðum Reykvíkinga á næstu fimm árum til fjárfestinga í Djíbúti, einu fátækasta ríki Afríku. Ég segi: „Spyrja má: Með samþykki hverra var loforðið við Clinton gefið — borgarstjórnar eða borgar-ráðs Reykjavíkur? Um þetta eins og allt annað í þessu máli vaknar spurningin: Hverjir hafa í raun umboð til að ráðstafa orkumilljörð-unum? Engin umgjörð breytir nauðsyn þess, að menn hafi heimildir til að ráðstafa eignum annarra.“

Í „tímaröð“ í skýrslu stýrihópsins segir: „Þann 28. september 2007 er greint opin-berlega frá samkomulagi þar sem REI skuld-bindur sig til að fjárfesta að lágmarki 10 milljónir Bandaríkjadala eða um 9 milljarða íslenskra króna á næstu fimm árum í jarð-varmavirkjunum í Austur-Afríku m.a. í Djibouti.“

Því miður kemur ekki fram í skýrslunni, hvernig staðið var að því að efna þessa tilkynningu um fjárfestingar í Djíbútí. REI og GGE höfðu ekki runnið saman í nýtt REI á þessum tíma. Eins og mál hafa þróast er líklegt, að loforð Ólafs Ragnars og Guðmundar á pallinum með Clinton verði ekki efnt nema með álögum á kaupendur þjónustu Orkuveitu Reykjavíkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 14 klukkutímum
Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum