
Hér er frétt um skuldir Baugs við Landsbankann. Samkvæmt fréttinni skulda Baugsfélög Landsbankanum og Kaupþingi 100 milljarða króna.
Maður spyr enn og aftur: Hvenær verða Bónusbúðirnar, Hagkaup og 10/11 teknar upp í þessar skuldir?
Svo er hér önnur frétt um annað útrásarafyrirtæki, Exista.
Þar segir að skilanefnd Landsbankans ætli að gjaldfella 27 milljarða skuld Exista.
Þýðir það ekki örugglega endalok þessa dæmalausa fjárglæfrafélags?