
Eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar er að sameina sjávarútvegsráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti – og ef ég skil rétt iðnaðarráðuneyti – í eitt atvinnuvegaráðuneyti.
Sjávarútvegsráðuneytið og landbúnaðarráðuneytið hafa verið eins og þjónustustofnanir fyrir hagsmunaaðila í sjávarútvegi og landbúnaði; stjórnsýslan sem hefur verið stunduð í þessum ráðuneytum er algjörlega fráleit.
Stundum hefur maður spurt sig hvort ekki væri einfaldast að sameina LÍÚ og sjávarútvegsráðuneyti.
Bændasamtökin og landbúnaðarráðuneytið.
Það mætti alveg hafa þetta allt á sama kontór.
Í síðarnefnda ráðuneytinu hefur hagsmunagæslan verið grímulausust – iðulega á kostnað neytenda.
Enda er hefð fyrir því að það eru afturhaldssömustu landsbyggðarþingmenn sem eru dubbaðir upp sem landbúnaðarráðherrar.
Gunnar Helgi Kristinsson prófessor, helsti sérfræðingurinn um íslenska stjórnkerfið orðaði þetta svo í Mogganum þegar ríkisstjórnin tók við:
„Það hefur mörgum þótt loða við sérstaklega landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið að þau væru veik gagnvart sínum atvinnugreinum og væru kannski of nátengd þeim.Sameinað ráðuneytið ætti að hafa burði til að vera faglega sterkara og með meiri möguleika á sérhæfingu og sérþekkingu, en þetta er líka pólitísk spurning,“ bendir hann á. Annars vegar hafi ásóknin í ráðherrastóla alltaf verið sterk og unnið gegn sameiningu ráðuneyta hér á landi. Hins vegar snýst þetta um aðgang viðkomandi atvinnugreinar eða hópa, sem störf ráðuneytisins snerta, að ráðuneyti. Hópar sem hafa haft aðgang að sérstöku ráðuneyti sem sinnir hagsmunum þeirra hafa að sumu leyti betri aðgang að stjórnkerfinu.“
En ef ríkisstjórnin meinar eitthvað með því að sameina þessi ráðuneyti í eitt atvinnuvegaráðuneyti spyr maður:
Dettur einhverjum í hug að Jón Bjarnason gegni því ráðuneyti?
— — —
Nú vill Jón fresta aðildarumsókn að ESB vegna deilna um Icesave við Hollendinga og Breta.
Umsóknin verður metin af framkvæmdastjórn ESB næstu mánuðina.
Eiginlegar viðræður við sambandið hefjast líklega á fyrri helmingi næsta árs, alls ekki fyrr.
Telur Jón að á þeim tíma verði Icesave enn ófrágengið?
Ætli Steingrímur J. sé sammála því mati?