fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Margverðlaunaðir menn

Egill Helgason
Sunnudaginn 19. júlí 2009 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta er árið 2008. Í febrúar.

Karl Wernersson er valinn viðskiptafræðingur ársins!

Í niðurstöðu dómnefndar sagði:

„Það voru margir til kallaðir en einn útvalinn. Sá útvaldi hefur reynslu í viðskiptalífinu sem fyllir tæpa þrjá áratugi – þótt hann sé ungur enn. Hann hefur alla tíð verið sjálfstæður í sínum rekstri sem hefur snertiflöt við stóran hluta íslensku þjóðarinnar. Fyrir nokkrum árum lagði hann nýja framtíðarsýn fyrir fyrirtæki sitt og skýrri stefnu hefur verið fylgt síðan. Á þessum tíma hefur hann náð frábærum árangri með fyrirtæki sín og tekist að gera rekstur félaganna afar umfangsmikinn og til marks um það telur efnahagur fyrirtækja hans um 380 milljarðar íslenskra króna. Hann hefur verið umsvifamikill þegar hefur komið að kaupum á fyrirtækjum og samrunum, en jafnframt hefur hann skapað mikinn innri vöxt. Fyrirtækin sem eru í rekstri viðkomandi í dag eru með starfsemi á Íslandi, á Norðurlöndum, í Austur Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum. Uppbygging á viðskiptaveldi hans hefur verið með ólíkindum og árangur í rekstri og fjárfestingum hefur verið eftirtektarverður á alla mælikvarða.“

Nú síðast fór auglýsingastofan hans í þrot með 300 milljónir í skuld.

Maður veltir því fyrir sér hverjir þeir voru þessir íslensku „auðmenn“. Voru þeir kannski engir auðmenn?

Allt snerist þetta um að taka nógu stór lán, að komast með lúkurnar í sparifé bæði Íslendinga og fólks í nágrannalöndum, um að mergsjúga fyrirtæki sem þeir höfðu keypt; um skammtímahugsun og skammtímagróða þar til allt hrundi.

Arðgreiðslurnar úr Sjóvá til Wernersbræðra eru eitt sérkennilegasta dæmið. 2007 var arðurinn sem bræðurnir fengu 170 prósentum meiri en hagnaður fyrirtækisins!

Tap á fjárfestingastarfsemi Sjóvár á síðasta ári var 35 milljarðar króna.

Annað dæmi er hvernig farið var með peningamarkaðssjóðina í Glitni og Landsbankanum.

Er það eitthvað annað en þjófnaður? Að smala sparifjáreigendum þarna inn til að kaupa skuldabréf í fyrirtækjum sem voru á fallanda fæti og fengu enga lánafyrirgreiðslu annars staðar?

Og að ríkið hafi talið sig nauðbeygt að koma þangað inn með 200 milljarða króna.

Það er spurning hvað er stærsti skandallinn í öllu þessu glæpabixi. Icesave kemur auðvitað sterkt inn. En peningamarkaðssjóðirnir koma líka sterklega til álita.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið