
DV segir frá því í dag að fjöldi æðstu stjórnenda úr gömlu bönkunum sé kominn út í „ráðgjöf“.
Það er reyndar algjör ráðgáta hverjir vilja þiggja ráðgjöf manna sem settu heilt bankakerfi lóðbeint á hausinn.
En svo kemur í ljós í greininni að greinin sem þeir flykkjast í eru „gjaldeyrisviðskipti“.
Þarna er semsagt matarholan. Það er ekki furða að krónan hækki ekki ef þetta lið er að leggjast á hana!
Annars verður þetta leikhús fáránleikans stöðugt brjálæðislegra.
Mogginn segir frá því að það hafi verið Halldór J. Kristjánsson bankastjóri sem fór í Búnaðarbankann til að fá lán fyrir Samson vegna kaupanna á Landsbankanum – hann heimtaði einfaldlega að Samson fengi lán á sömu kjörum og Egla hafði fengið í Landsbankanum vegna kaupanna á Búnaðarbankanum!
Hvílíkir snillingar!!!
Og svo kemur í ljós að fjárfestingarfasteignir, eins og það er orðað í Mogganum, voru orðnar 77 prósent af öllum eignum Sjóvár um síðustu áramót. Fyrir þremur árum voru þær 1 prósent. Tryggingafélaginu var semsagt breytt í fjárfestingarfélag fyrir eigendur sína. Á þessum tíma greiddu Wernersbræður, eigendur félagsins, sér 17 milljarða króna í arð út úr félaginu.
Það gilda ströng lög um starfsemi tryggingafélaga. Þau gera ábyggilega ekki ráð fyrir þessu.