
Ég fór nokkuð víða um bæinn í gær. Það er langt síðan ég hef talað við svona margt fólk á einum degi.
Flestir sem ég hitti virtust vera tilbúnir að tékka á ESB.
Aðallega að losna undan klíkunum sem hafa stjórnað á Íslandi, sagði fólkið.
Peningaklíkunum, flokksklíkunum, gömluvinaklíkunum, hagsmunaklíkunum.
Það er kannski ekkert sérlega spennt fyrir ESB, en það er alveg búið að gefast upp á þessu liði.