
7. október á síðasta ári tilkynnti Davíð Oddsson eins og bjargvættur að Rússar ætluðu að lána Íslendingum tröllaukna fjárhæð, 4 milljarða evra.
Lánið kom ekki. Menn veltu á þeim tíma fyrir sér hver hefðu verið tildrög þessarar uppákomu eða hverjir höfðu milligöngu um það.
Það er ekki enn komið í ljóst. Getgátur voru um að Björgólfur Thor Björgólfsson hefði komið að málinu.
Loks nú, níu mánuðum síðar, virðist vera búið að samþykkja Rússalán.
Upphæðin er reyndar miklu lægri en rætt var um í október, eða 500 milljón dollarar. Það er varla nema tíundipartur þeirrar fjárhæðar sem talað var um þá.