fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Að fljúga ódýrt – eða ekki?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 16. júlí 2009 21:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Jónsson bloggar um lágfargjaldaflugfélög.

Ég hef notað þau ansi mikið. Ég get ekki hugsað mér lífið án þess að ferðast, en tími ekki að eyða miklum peningum í farseðla.

Easy Jet er ágætt félag, það býður ekki upp á nein sérstök þægindi, en yfirleitt halda flugvélar þeirra áætlun mjög nákvæmlega. Verst er að þeir eru farnir að rukka peninga fyrir alls konar smáhluti, fyrir töskur, fyrir að komast fljótt upp í vélina.

En ég hef ekkert sérlega góða að reynslu af Ryanair, vel fremur Easy Jet.

Iceland Express er aftur orðið ódýrasta leiðin til að komast úr landi. Um tíma voru þeir ekkert ódýrari en Icelandair. En í vetur og vor hafa flugmiðar hjá Icelandair snarhækkað.

Gallinn við Iceland Express er hvað þeir halda illa áætlun. Um daginn voru kona mín og sonur á leið til útlanda að hitta mig.

Vélin frá Iceland Express var 9 klukkutímum of sein. Þetta þýddi að þau misstu af tengiflugi og þurftu að gista í London.

Það kostaði sitt kaupa hótel og breyta farmiðum í tengifluginu.

Aftur lenti ég í vandræðum með Iceland Express um helgina. Það var reyndar sjálfum mér að kenna.

Ég hafði í heimsku minni bókað flug frá Reykjavík til London, þegar ég ætlaði að fara hina leiðina, frá London til Reykjavíkur.

Þetta uppgötvaðist ekki fyrr en rétt áður en við ætluðum að leggja af stað út á flugvöll.

Við komumst heim daginn eftir. En það kostaði næstum 60 þúsund að breyta þessum þremur flugmiðum.

Það var dálítið bratt. Mér varð hugsað til Grikklands. Stundum geta hlutir virst dálítið skipulagslausir í því landi. Á móti kemur að starfsfólk er oft ekki mjög reglufast; það er til í að beygja reglurnar aðeins ef með þarf. Ég hef stundum lent í svona vandræðum þar, en yfirleitt hefur verið leyst úr því með ákveðnu kæruleysisviðhorfi sem er mjög grískt.

Hér á Íslandi er viðhorfið oftar í anda þáttanna Little Britain:

The computer says no.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

McKennie framlengdi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið