

Þegar ég var strákur og fram eftir aldri var ég með dellu fyrir heimskautaferðum. Þessi áhugi var einungis fræðilegur, því mér er illa við kulda og vosbúð. Langar ekki vitund út á heimskautaís.
En ég hafði áhuga á hetjusögum sem gerðst á heimskautunum. Sérstaklega þó Amundsen. Ferð hans með Göja um Norðvesturleiðina. Kapphlaup hans og Scotts á Suðurheimskautið þar sem Amundsen reyndist vera yfirburða skipuleggjari og leiðtogi meðan Scott var klúðrari sem stofnaði lífi sjálfs sín og annarra í sífellda hættu.
Bretar hafa hins vegar reynt að ljúga því að sjálfum sér og heimsbyggðinni að Scott hafi verið hetja en Amundsen skúrkur sem þekkti ekki fair play.
Um þessa ferð skrifaði Roland Huntford stórkostlega bók, The Last Place on Earth, þar sem hann dregur fram muninn á fagmennsku Amundsens og vanhæfi Scotts. Bretum er sérlega illa við þessa bók, enda eru þeir aldir upp við hetjusögur af Scott og mönnum hans í tjaldinu síðustu stundirnar áður en þeir deyja úr kulda og vosbúð.
Bretar gengust upp í heroic failure meðan Amundsen stefndi þráðbeint að marki sínu, einbeittur og viljasterkur. Ferð hans á Suðurpólinn 1911 er nánast eins og ör sem er skotið inn í heim kuldans og svo kippt þaðan aftur. Amundsen notaði sleðahunda og hafi lært margt um heimskautalíf af ínuítum; Bretarnir þóttust of fínir til þess. Þeir drógu sleðana sína sjálfir.
Amundsen missti aldrei mann á ferðum sínum.
En svo dó hann sjálfur í dularfullu flugslysi 1928.
Þetta var söguefnið í bók sem ég las sem strákur og líka kvikmynd sem nefnist Rauða tjaldið. Myndin var samframleiðsla Sovétmanna, Breta og Ítala og mér fannst hún fjarska áhrifarík þegar ég sá hana í Háskólabíói. Ekki minni maður en Sean Connery lék Amundsen í myndinni
Ítalinn Umberto Nobile vildi komast á Norðurheimskautið á loftfari. Loftskipið brotlenti og Nobile var saknað ásamt mönnum sínum. En vitað var að þeir væru á lífi á ísnum. Það var gerð mikil leit – og Amundsen fór af stað í sjóflugvél þótt hann hefði lítið álit á Nobile.
Vélin týndist og með henni einn mesti landkönnuður sögunnar.
En því skrifa ég þetta að ég las frétt um að norski herinn ætli nú að reyna að finna flugvél Amundsens undan strönd Bjarnareyjar.