fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
433Sport

Arsenal stígur inn og leiðir kapphlaupið gegn Liverpool og United

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hyggst gera atlögu að enska landsliðsmanninum Anthony Gordon í sumar og vonast til að klófesta hann fyrir um 75 milljónir punda. Ensk blöð segja frá.

Topplið ensku úrvalsdeildarinnar er talið vera komið á undan bæði Liverpool og Manchester United í kapphlaupinu um leikmanninn og telur að Gordon sé opinn fyrir því að færa sig suður til London.

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur lengi haft miklar mætur á honum frá tíma hans hjá Everton.

Gordon, sem varð 25 ára í vikunni, á tvö ár eftir af samningi sínum við Newcastle. Félagið mun þó krefjast allt að 95 milljóna punda, en líklegra þykir að endanlegt verð verði á bilinu 75 til 80 milljónir.

Arsenal vill styrkja vinstri kantinn og gæti komu Gordons þýtt að Gabriel Martinelli fari á braut.

Gordon var nálægt því að ganga til liðs við Liverpool fyrir tveimur árum en sá samningur gekk ekki eftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Markús Páll sagður á leið upp á Skaga

Markús Páll sagður á leið upp á Skaga
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Leikmaður Manchester City sagður bitur eftir þessi ummæli í gær – Myndband

Leikmaður Manchester City sagður bitur eftir þessi ummæli í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Varð að hætta eftir að flugeld var kastað í hann

Látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Varð að hætta eftir að flugeld var kastað í hann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem Scholes hjólar í Carrick

Ekki í fyrsta sinn sem Scholes hjólar í Carrick
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eyðir færslum þar sem hann urðaði yfir Carrick – „Michael hefur klárlega eitthvað sérstakt við sig“

Eyðir færslum þar sem hann urðaði yfir Carrick – „Michael hefur klárlega eitthvað sérstakt við sig“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vildi ekki fara úr húsi og grét heima hjá sér síðasta haust

Vildi ekki fara úr húsi og grét heima hjá sér síðasta haust