fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Ekki hægt að nota gömlu tuggurnar

Egill Helgason
Sunnudaginn 1. mars 2009 09:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gagnrýnin fyrri ríkisstjórn, forystu Sjálfstæðisflokksins, Seðlabankann, eftirlitsstofnanirnar og einkavæðinguna er býsna hörð í þessari skýrslu innan úr endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins.

Nú er spurning hvað forystan og flokkurinn gerir með þetta?

Því auðvitað þarf ekki bara nýtt fólk, heldur væntanlega líka nýja hugmyndafræði í stað þeirrar sem er hrunin.

Mér er það að vissu leyti ráðgáta hvernig flokkarnir ætla að kynna sig í næstu kosningum.

Því víst er að það verður ekki hægt að endurnýta gömlu frasana og tuggurnar eins og hefur verið gert ár eftir ár, áratug eftir áratug.

Um einkavæðingu bankanna segir til dæmis þetta:

Óumdeilt er að rétt hafi verið að einkavæða þá banka sem voru í eigu ríkisins árið 2002.  Með því leystist úr læðingi kraftur sem var atvinnu-lífinu nauðsynlegur.  Pólitísk fyrirgreiðsla skyldi líða undir lok og skilvirkni markaðarins ráða.  Þetta ferli hófst árið 1990 þegar Útvegsbankinn var sameinaður minni bankastofnunum og úr varð Íslandsbankinn og lauk þegar Landsbankinn og Búnaðarbankinn voru að fullu einkavæddir.  Mjög er hins vegar gagnrýnt hvernig var staðið að að einkavæðingu þessara tveggja banka.  Ferlið var ógagnsætt og hagstæðari tilboð fyrir ríkissjóð á alla hefðbundna mælikvarða voru sniðgengin.  Ekki var fylgt upphaflegri aðferðarfræði, s.s. um dreifða eignaraðild.  Bankarnir lentu, að einhverju marki eftir pólitískum línum, í höndum aðila sem voru reynslulitlir í bankastarfsemi (alþjóðlegri sérstaklega) Meðferð sparifjár er alltaf viðkvæm og þarf að vera háð ströngum siðalögmálum, auk öruggrar framkvæmdar laga og reglugerða  .  Margt í upphaflegri aðferðafræði við einkavæðingu ríkisbankanna tveggja var heppilegt s.s. að gera  ráð fyrir mjög dreifðri eignaraðild.  Að þessu öllu skal hyggja þegar kemur að því að einkavæða bankana á ný.  Það ferli taki mið af þeim augljósu mistökum sem gerð voru við einkavæðingarferlið hið fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi