fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Hans Jürgen Massaquoi

Egill Helgason
Sunnudaginn 11. janúar 2009 22:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpið hefur verið að sýna afskaplega merkilega mynd síðustu tvö sunnudagskvöld.

Um svartan strák sem elst um í Hamborg á tíma Hitlers.

Hans Jürgen Massaqoui var sonur diplómata frá Líberíu og þýskrar konu. Eftir stríðið varð hann blaðamaður og ritstjóri og bjó lengst af í Bandaríkjunum. Hefur þó alltaf litið á sig sem Þjóðverja – hann er enn á lífi á níræðisaldri.

02299oid114084800.jpg

Þetta er sagan um fallegan, góðan og geðslegan pilt sem sem er ungur á hræðilegum tímum. En líf hans er ekki í hættu; nasistasamfélagið hafði enga sérstaka stefnu gagnvart blökkumönnum. Þeir voru varla til í Þýskalandi. Hans Jürgen og móðir hans verða fyrir margvíslegum óþægindum, þau eru útundan í þúsundáraríkinu, en þau eru ekk beinlínis ofsótt. Vegna húðlitar síns kemst hann meira að segja hjá því að fara í herinn.

Myndin sýnir hvernig samfélag kúgunar og alræðis leikur venjulegt fólk. Það er það besta við myndina. Hún segir frá ofurvenjulegu fólki, oftast ágætu fólki, og hvernig það bregst við og spillist af kúguninni, sjálfsréttlætingu þess. Hvernig það tekur sér í munn frasana, tileinkar sér hugmyndafræðina, lifir blekkinguna.

Eitt átakanlegasta atriðið í myndinni er þegar pilturinn Hans Jürgen lætur vinkonu þeirra mæðginanna sauma hakakross í peysuna sína. Hann langar að ganga í Hitlersæskuna en fær ekki. Eins og sjá má á þessari ljósmynd er þetta byggt á raunverulegum atburðum – hér er myndin af sjálfum Hans Jürgen Massaquoi með hakakrossinn á peysunni.

56369-56370-1-massaquoi.jpg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur