fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Ókindin

Egill Helgason
Föstudaginn 9. janúar 2009 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður verður alltaf meira og meira hissa. Það hefur verið farið í alla sjóði á Íslandi og þeir tæmdir. Slegin lán út á framtíðina eins og enginn væri morgundagurinn. Hagnaður margra ára eða áratuga tekinn út fyrirfram.

Ég hitti mann á förnum vegi sem sagði að þetta sýndi að Íslendingar væru lélegir búmenn. En þarna er á ferðinni eitthvað meira en það. Þetta er einhvers konar bilun sem hefur gripið um sig. Hvar sem var von um verðmæti var reynt að sjúga þau upp – eins og einhver ókind hefði verið þarna á ferðinni.

Það eru mörg dæmi. Til að mynda sjávarauðlindin. Það tókst naumlega að stöðva að orkan færi sömu leið – samsærið um það var komið vel áleiðis.

Og svo er það þessi frétt í Mogganum í dag. Um það hvernig bankarnir sóttu fé nær óhindrað inn í Seðlabanka og skyldu eftir haug af verðlausum pappírum.

Sem ríkissjóður tók yfir nú um áramótin svo lítið bar á. Annars væri Seðlabankinn á hausnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 8 klukkutímum
Ókindin
EyjanFastir pennar
Fyrir 21 klukkutímum
Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum