
Teitur Atlason sem heldur úti vefsíðunni Eimreiðinni birtir þetta skipurit af Nýja Landsbankanum.
Merkilegt er að skipuritið er nánast eins og í Gamla Landsbankanum. Smellið til að stækka.
Annars segja þeir sem þekkja til í bankarekstri að bankarnir séu ennþá alltof stórir miðað við það hlutverk sem þeir munu hafa næstu árin. Það fer varla neinn í mikil bankaævintýri á næstunni – þetta verða varla annað en sparisjóðir.