
Við sem unnum Krít og Grikklandi fögnum því að leikkonan Jennifer Aniston ætli að gifta sig í bænum Hania í sumar.
Margir Íslendingar hafa heimsótt þennan fagra og vinalega bæ.
Við höfum lengi vitað að Jennifer er af grískum ættum, faðir hennar heitir í raun Yannis Anastasakis.
Ég hef margsinnis dvalið á Krít og veit að brúðkaup þar eru ekkert smámál. Gestir skipta stundum þúsundum. Krítverjar eru upp til hópa ættaðir úr þorpum um eyjuna. Það er venja að bjóða öllum íbúunum úr þorpunum þaðan sem maður er ættaður – til þess að sjá um það eru fengnir sérstakir menn, eins konar kallarar. Það er svo undir hælinn lagt hvort brúðhjónin þekki nema brot af gestunum.
Ekki veit ég hvort að svo verður um brúðkaup Jennifer Aniston. En á krepputímum kemur fjölmiðlaathyglin íbúum Hania – þessa indæla bæjar – ábyggilega til góða.

Hania með Hvítu fjöllin í bakgrunni. Brúðkaup á Krít eru mjög fjölmenn.