Ný Pisakönnun er birt í dag með hrollvekjandi upplýsingum úr íslensku skólakerfi. Það sígur enn á ógæfuhliðina varðandi læsi meðal drengja. 30 prósent þeirra eru á neðstu þrepum lesskilnings, eins og það er orðað, og stærðfræðikunnáttan er líka léleg.
Í framhaldi af því birti ég aftur þetta viðtal við Sölva Sveinsson. Þarna er komið inn á stærstu álitaefnin í íslensku skólakerfi – meðal annars læsið. Og þarna er að finna hugmyndir að lausnum sem við getum reynt að nota – ef þetta blessaða kerfi hefur ekki algjörlega vaxið okkur yfir höfuð, eins og algengt er á Íslandi.