fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Sigurður Nordal og stofnun lýðveldisins

Egill Helgason
Mánudaginn 17. júní 2013 12:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vitnaði í Sigurð Nordal í ræðu sinni á Austurvelli í dag, 17. júní.

Það fer auðvitað ágætlega á því.

Það var samt ekki nefnt að Sigurður var mótfallinn stofnun lýðveldisins 1944. Hann var í hópi lögskilnaðarmanna svokallaðra sem héldu því fram að það væri skammarlegt af Íslendingum að laumast undan stjórn Dana á tíma þegar Danmörk væri hersetin af þýskum nasistum.

Áróðurinn gegn lögskilnaðarmönnum var reyndar svo stækur að þeir voru algjörlega kveðnir í kútinn. Þeir voru útmálaðir sem landráðamenn.  Og það er varla fyrr en á síðustu árum að má nefna að þeir höfðu kannski eitthvað til síns máls.

Íslenska lýðveldið var náttúrlega stofnað undir vernd Bandaríkjanna og var það lengi. Þeir mættu huga að því sem mest tala um fullveldi. Þetta var til dæmis mjög ofarlega í huga Ólafs Ragnars Grímssonar meðan hann var prófessor í stjórnmálafræði.

En Sigurður Nordal sparaði ekki stóru orðin þegar hann skrifaði um lýðveldisstofnunina í sérstökum bæklingi árið 1943:

„…fyndist mér það viðbjóðslegur endir sjálfstæðisbaráttu vorrar, að vér þægjum í rauninni hina síðustu frelsisskrá vora úr föðurhöndum böðla Norðurálfunnar.“

“ En væri ekki betur við eigandi, að sú íslandsglíma færi ekki fram 17. júní, heldur á afmælisdag Adolfs Hitlers, sem vér eigum hvort sem er allar ..vanefndir“ Dana að þakka?“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki