Nadinne Bruna, 32 ára Instagram-stjarna, varð nánast blind eftir að hafa gengist undir aðgerð í Kólumbíu. Bruna, sem er frá Argentínu og búsett í Miami á Flórída, er með rúmlega milljón fylgjendur á Instagram þar sem hún situr fyrir fáklædd á ljósmyndum.
Aðgerðin sem um ræðir sneri að því að breyta litnum í augunum á henni með sílíkonígræðslu. Bruna vildi fá ljósgrá augu en aðgerðin misheppnaðist hrapallega og kveðst hún sjálf vera með sjón á við níræða konu. Aðgerðin var framkvæmd í Kólumbíu sem fyrr segir, þar sem aðgerðir sem þessar eru ekki leyfilegar í Bandaríkjunum.
Bruna gekkst undir aðgerðina í lok árs 2016 og varð hún fyrir óafturkræfum skaða í kjölfarið. Hún hefur nú tjáð sig í fyrsta skipti um aðgerðina og þau áhrif sem hún hefur haft á daglegt líf hennar.
„Áður en ég gekkst undir aðgerðina þá var ég með fullkomna sjón. Eftir aðgerðina hefur sjónin verið mjög þokukennd. Fyrsta árið eftir hana voru augun rauð og mig klæjaði stanslaust. Skemmdirnar eru óafturkræfar,“ segir Bruna og bætir við að hún þurfi að gangast undir hornhimnuígræðslu á næstunni. Hún er viðkvæm fyrir ljósi og hefur þróað með sér gláku sem einkennist af minnkandi sjón og blindu ef ekkert er að gert.
Fyrirsætan kveðst hafa glímt við þunglyndi eftir aðgerðina; hún hafi treyst röngum einstaklingum þegar hún ákvað að fara til Kólumbíu í aðgerðina.
Ranya Habash, sérfræðingur í augnlækningum í Miami, hefur haft Brunu til meðferðar. Habash segir við Mail Online að aðgerðir sem þessar séu mjög varasamar og hvetur engan til að gera slíkt hið sama og Bruna gerði.
„Vandamálið við að setja sílikonplötu í augun er það að það stíflar augað, alveg eins og þú myndir stífla vask. Þrýstingurinn í auganu eykst sem veldur bólgum og skemmdum. Það er ástæða fyrir því að þessar aðgerðir eru ekki leyfar af Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna,“ segir Habash.