fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kalla þá ruddana tólf

Listinn verður opinberaður endanlega í maí – Teygir sig í gömul mál – og ný – 33 nöfn af svörtum lista

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. apríl 2016 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Panama-pappírarnir. Stjórnmálamennirnir, glæpamennirnir og svikabransinn sem felur peningana þeirra,“ er yfirskrift stærsta leka sögunnar. Skjölin sýna að 140 núverandi og fyrrverandi stjórnmálamenn og opinberir starfsmenn tengjast aflandsfélögum víðs vegar um heiminn. Tólf þjóðarleiðtogar eru á listanum, þeirra á meðal forseti Úkraínu, forsætisráðherra Íslands og Pakistan. Umfang gagnanna er umtalsvert – um er að ræða 11,5 milljónir skjala og á tölvumáli er um að ræða 2,6 terrabyte af gögnum sem tekið hefur alþjóðleg samtök rannsóknarblaðamanna (ICIJ) og blaðamenn þýska dagblaðsins Süddeutsche Zeitung umtalsverðan tíma að komast í gegnum. Gögnin telja tölvupóst, fyrirtækjaskýrslur, fjárhagsupplýsingar og afrit vegabréfa. Upplýsingarnar eru frá árunum 1977–2015. Süddeutsche Zeitung fékk gögnin frá ónafngreindum heimildarmanni, sem sagði að líf sitt lægi við ef nafn hans kæmi fram. ICIJ tók þátt í verkefninu og skipulögðu starfsemi blaðamanna á heimsvísu til að taka þátt. Fór það svo að 370 blaðamenn í 76 löndum fóru yfir gögnin sem eiga uppruna sinn hjá lögfræðistofunni Mossack Fonseca, sem starfar í 38 ríkjum á heimsvísu.

Fyrirtækið er eitt stærsta sinnar tegundar og hefur þá sérstöðu að stofna sérstök skúffufélög sem notuð eru til þess að fela eignarhald fyrirtækja.

En hvað er þetta? Vert er að taka fram að það er ekki ólöglegt að eiga aflandsfélag og er það talsvert notað í alþjóðlegum viðskiptum. En séu aflandsfélögin notuð til að fela eignir, hylja slóðir eða koma í veg fyrir að fyrirtæki og einstaklingar greiði skatta er komið inn á siðferðilegt og lagalegt sprengjusvæði. Það þarf þó ekki að vera að einstaklingar og fyrirtæki hafi notað aflandsfélögin í óheiðarlegum hætti. Starfsemi sem þessi er lögleg, ef aðilar sem nýta sér hana fara að lögum. ICIJ segir að gögnin sýni að fyrirtæki hafi milligöngumenn á aflandseyjum, leynt færslum, hagrætt gögnum og þannig falið slóð sína og viðskiptavina.

Félögin sem ICIJ hefur upplýsingar um eru 214.488 og ná til einstaklinga í 200 löndum. Mossack Fonseca segir sjálft að rannsókn blaðamannanna sé ekkert nema árás á Panama og eigi rætur að rekja til öfundsýki vegna umfangsmikilla viðskipta í Panama.

„Ruddarnir tólf“

Á listanum – ásamt Sigmundi Davíð – eru Mauricio Macri, forseti Argentínu, Sjeik Hamad bin Khalifa Al Than, emír af Katar, Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, Ahmad Ali al-Mirghani, fyrrverandi forseti Súdan, Ali Abu al Ragheb, fyrrverandi forsætisráðherra Jórdaníu, Vladimír Pútín, forseti Rússlands, Salman bin Abdulaziz bin Abdulrahman Al Saud, konungur Sádi-Arabíu, Pavlo Lazarenko, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, Hamad bin Jassim bin Jaber Al Thani, fyrrverandi forsætisráðherra Katar, Ayad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks, Khalifa bin Zayed bin Sultan Al Nahyan, forseti Sameinuðu arabísku furstadæmanna, og Bidzina Ivanishvili, fyrrverandi forsætisráðherra Georgíu. Þeir hafa verið kallaðir „the dirty dozen“ sem er tilvísun í samnefnda kvikmynd frá árinu 1967. The Dirty Dozen fékk á sínum tíma íslenska heitið 12 ruddar.

Hezbolla og Norður-Kórea

Hér á eftir verður stiklað á stóru og aðeins farið yfir nokkra hluti tengda skjölunum, en ógjörningur er að komast yfir allt sem þar kemur fram.

Í skjölunum má einnig finna 33 einstaklinga og fyrirtæki sem eiga sæti á svörtum lista bandarískra stjórnvalda sem telja sig hafa sönnun þess að þeir hafi átt í viðskiptum við mexíkóska glæpamenn, hryðjuverkasamtök eins og Hezbollah og óstöðug ríki svo sem Norður-Kóreu og Íran. Eitt fyrirtækjanna er meðal annars sakað um að hafa veitt sýrlenskum stjórnvöldum flugvélabensín. Flugvélin var síðar notuð til að sprengja saklausa borgara í Sýrlandi.

Gögnin tengja einnig menn sem hafa talað gegn notkun skattaskjóla af miklu kappi. Til dæmis tengist faðir Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, aflandsfyrirtækjum. David Cameron hefur beitt sér gegn skattaskjólum.

Pútín-tenging

Gögnin hafa einnig beinar tengingar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Þar kemur fram að samstarfsmenn hans komu tveimur milljörðum Bandaríkjadala undan með aðstoð banka og félaga. Í umfjöllun ICIJ kemur fram að leynilegar aðgerðir þessara samstarfsmanna, fyrirtækja og banka hafi gert kleift að flytja allt að 200 milljónir Bandaríkjadollara milli félaga. Færslurnar voru faldar, skjöl voru dagsett aftur í tímann og náðu Pútín og félagar þannig leyndu taki á fjölmiðlum og í bílaframleiðslu Rússlands. Talsmenn forsetans hafa haldið því fram að hér sé um að ræða misvísandi „upplýsingaárás“ á Pútín og samstarfsmenn hans.

Gömul mál í skúffum

Þúsund ástralskar tengingar hafa fundist í gögnunum og hafa vegabréf hundraða Ástrala fundist þar á meðal. Það þýðir að viðkomandi eru tengdir fyrirtækjunum sem forstjórar, hluthafar og eigendur.
Skjólin varpa einnig ljósi á eldri mál, sum sem margir töldu jafnvel komin niður í skúffu. Í þeim kemur meðal annars fram að Gilbert R.J. Straub, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti 1995, átti að hafa greitt fimmtíu þúsund dollara í ólögleg kosningaframlög, en peningarnir voru á endanum notaðir til að greiða innbrotsþjófum í Watergate-málinu sem á endanum felldi Richard Nixon Bandaríkjaforseta.

Fleiri sprengjur

Ljóst er að annarri sprengju verður varpað þegar gögnin verða svo öll afhjúpuð í maímánuði, en þá verður listinn eins og hann leggur sig birtur, það er nöfn aðila og fyrirtækja. Tuttugu og níu einstaklingar á FORBES-listanum yfir ríkustu einstaklinga heims er einnig að finna þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa