

Það gæti verið erfiðara að finna rétta veitingastaðinn eða grípa sér skyndibita þegar maður borðar ekkert kjöt, en grænmetisætur og enn fremur þeir sem tileinka sér svokallað vegan-mataræði, gætu hreinlega bjarga heiminum samkvæmt nýrri rannsókn. Að því er fram kemur í skýrslu á vegum Oxford-háskólans getur slíkt mataræði bjargað vistkerfinu sem og milljónum mannslífa.
Þar kemur fram að ef allir á jörðinni myndu tileinka sér hollara líferni, án neyslu kjöts og annarra dýraafurða, myndi það spara yfir hundrað þúsund milljarða króna í heilbrigðiskostnað ásamt því að draga úr útblæstri vegna matarframleiðslu og –flutnings um 70 prósent. Þetta er í fyrsta sinn sem rannsókn hefur verið gerð á áhrifum vegan-mataræðis á heimsvísu með heilsu og loftslagsáhrif að leiðarljósi.