fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna – „Ekkert af þessu varðar almenning“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 11. júní 2026 10:30

Haraldur Noregskonungur, Sonja drottning, Hákon krónprins, Ingiríður Alexandra prinsessa og Mette Marit krónprinsessa við afhendingu friðarverðlauna Nóbels á síðasta ári. Mynd: Jonathan Mazin. Wikimedia Commons C.C. 4.0.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk-norski þingmaðurinn Mímir Kristjánsson kallar eftir því að norskir fjölmiðlar sýni konungsfjölskyldunni þar í landi meiri tillitssemi og samúð vegna ástands Mette Marit krónprinsessu sem liggur á sjúkrahúsi vegna lungnasjúkdóms síns en ástand prinsessunnar er alvarlegt.

Mikið hefur mætt á fjölskyldunni undanfarið vegna fyrri tengsla Mette Marit við hinn fræga kynferðisbrotamann Jeffrey Epstein, dómsmáls gegn Marius syni hennar af fyrra hjónabandi vegna gruns um fjölda brota og loks nú vegna ástands prinsessunnar sem liggur eins og áður segir alvarlega veik á sjúkrahúsi en hún er komin á biðlista eftir lungnaígræðslu.

Mímir Kristjánsson. Mynd: Rødt. Wikimedia Commons CC.BY.4.0

Mímir, sem á íslenskan föður og norska móður, er þingmaður á norska Stórþinginu fyrir flokkinn Rautt (n. Rødt) en flokkurinn er lengst til vinstri í stjórnmálum af öllum þeim flokkum sem eiga sæti á þingi. Stjórnmálamenn með slíkar skoðanir eru yfirleitt ekki hrifnir af konungdæmum og það er raunar stefna flokksins að afleggja hina þingbundnu konungsstjórn í Noregi og gera landið að lýðveldi.

Fjölmiðlar

Mímir lætur þá stefnu hins vegar ekki stoppa sig í að kalla eftir því að konungsfjölskyldan fái frið til að huga að Mette Marit. Hann ritar um framgöngu fjölmiðla gagnvart fjölskyldunni á Facebook og segir að nú verði þeir að gefa aðeins eftir:

„Konungsfjölskyldan er augljóslega konungleg, en þau eru líka fjölskylda.“

Mímir segir að almenningur þurfi ekki að sjá myndir teknar úr laumi af tveimur börnum heimsækja móður sína á spítalann en þar á hann við Ingiríði Alexöndru prinsessu og Sverri Magnús prins, börn Mette Marit og Hákons krónprins. Marius fékk hins vegar ekki leyfi til að fá að heimsækja móður sína en hann er í gæsluvarðhaldi.

Mímir segir einnig að almenningur hafi enga þörf fyrir beina útsendingu fjölmiðilsins VG frá stéttinni fyrir utan spítalann:

„Þar sem kona með lungnasjúkdóm kann að deyja.“

Almenningur þurfi heldur ekkert að vita allt um það hvort sonur ( Marius, innsk. DV) fái að vera með móður sinni við það sem í versta falli geti orðið banalega hennar:

„Ekkert af þessu varðar almenning.“

Mímir segir að ekki sé í þessu öllu saman verkefni fyrir norskt samfélag sem heild. Umfjöllunin og fjölmiðlafárið vegna veikinda krónprinsessunnar beri vott um óviðfelldið hugarfar sem einkennist af hjarðhegðun og það þurfi fólk ekki að beygja sig undir.

Mímir segist að lokum taka undir beiðni Kjersti Toppe þingkonu Miðflokksins (n. Senterpartiet) til fjölmiðla um að slökkva á myndavélunum:

„Núna þarf konungfjölskyldan að fá smá frið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris ósátt: „Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi“

Íris ósátt: „Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“