

Maður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að valda stórbruna þegar hann var að brenna kynlífsleikföng í bakgarðinum sínum.
Slökkvilið á Staten Island í New York í Bandaríkjunum var kallað út í apríl í fyrra vegna stórbruna. Harry Torres hafði verið að brenna kynlífsleikföngin í bakgarði húss þar sem hann býr ásamt móður sinni. Samkvæmt frétt Staten Island Live fór eldurinn úr böndunum og barst í timburgirðingu og þaðan yfir í nærliggjandi hús. Hefur frétt Staten Island Live eftir heimildarmönnum að um hafi verið að ræða svokallaðar múffur.
Alls skemmdust þrjú hús og tveir bílar. Engan sakaði. Torres var handtekinn á vettvangi en fékk ekki tækifæri til að klæða sig í föt áður en hann var leiddur fyrir dómara. Hann er nú laus en undir eftirliti fram að réttarhöldum.
Réttarhöldin yfir Torres hefjast í næstu viku en hann á yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi fyrir íkveikju og stórkostlegt gáleysi.