fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 26. apríl 2026 09:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan hafði í nægu að snúast í nótt, en frá því klukkan 17 í gær þar til klukkan 05 í morgun voru 102 mál bókuð í kerfi lögreglu. Af dagbók lögreglu má ráða að nokkuð var um vandræðagang vegna áfengisdrykkju.

Óskað var eftir lögreglu á skemmtistað vegna einstaklings sem er grunaður um að stela áfengi á staðnum. Var hinn grunaði handtekinn en látinn laus að lokinni skýrslutöku.

Tilkynnt var um einstakling sem var ofurölvi og ósjálfbjarga og hann aðstoðaður heim.

Á hóteli í borginni var óskað eftir aðstoð vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða. Var umræddur handtekinn og fær að sofa úr sér í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.

Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð vegna farþega sem neitaði að borga.

Fram kemur í dagbók lögreglu að í þremur aðskildum málum voru einstaklingar handteknir meðal annars fyrir að neita að gefa upp hverjir þeir eru. Einn þeirra er grunaður um brot á lögreglusamþykkt og var handtekinn þegar hann neitaði að gefa upp hver hann væri. Í öðru máli höfðu lögreglumenn afskipti af einstaklingi sem tók á rás þegar hann var spurður um nafn. Komst viðkomandi ekki langt þar sem lögreglumennirnir voru töluvert sneggri á sprettinum. Reyndist viðkomandi með ætluð fíkniefni á sér og var því handtekinn, en látinn laus að lokinni skýrslutöku. Í þriðja málinu hafði lögregla afskipti af einstaklingi sem var að trufla störf lögreglu. Sá neitaði að gefa upp hver hann væri og var því handtekinn. Þegar upp á lögreglustöð var komið neitaði hann enn að gefa upp nafn og var því vistaður í fangaklefa þar sem hann fær að dúsa þar til hægt verður að komast að því hver hann er.

Lögregla var kölluð út vegna slagsmála utan við skemmtistað, vegna innbrots í fyrirtæki og vegna ölvaðs einstaklings sem var í tökum dyravarða skemmtistaðar.

Fimm eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í einu málinu reyndist ökumaður bifreiðar vera með tvö eggvopn á sér. Fimm eru svo grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis.

Lögreglumenn frá lögreglustöðinni við Vínlandsleið voru kallaðir út vegna einstaklings sem var með ógnandi hegðun. Meðan lögregla var á leið á vettvang braut einstaklingurinn rúðu í íbúð aðilans sem óskaði eftir aðstoð lögreglu. Hann var handtekinn en reyndist þá vera andlega veikur og var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.