fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Sigurður Kári telur að þetta skýri afsögn Guðmundar Inga úr Flokki fólksins – „Mjög óvenjuleg í öllum skilningi“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 15:30

Sigurður Kári leggur orð í belg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr þingliði Flokks fólksins geti ekki hafa verið málefnalegt fyrst hann styðji áfram ríkisstjórnina. Trúnaðarbresturinn hljóti að felast í sviknu loforði.

Síðdegis í gær greindi Guðmundur Ingi að hann hefði sagt skilið við þingflokk Flokks fólksins en myndi sitja áfram sem óháður þingmaður og styðja við ríkisstjórnina. Vísaði Guðmundur Ingi til trúnaðarbrests sem varði persónuleg samskipti innan flokksins sem ástæðu, án þess að útskýra það nánar.

Inga Sæland, formaður flokksins, vildi heldur ekki tjá sig um þennan trúnaðarbrest en sagðist óska Guðmundi Inga velfarnaðar.

„Það eina sem mér dettur í hug, á þessum tímapunkti, að skýri úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins er að Inga Sæland hafi lofað Guðmundi sæti í ríkisstjórn að loknu veikindaleyfi, en svikið það loforð,“ segir Sigurður Kári í færslu á samfélagsmiðlum.

Ekki málefnaágreiningur

Guðmundur Ingi tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra í marsmánuði árið 2025 eftir afsögn Ástu Lóu Þórsdóttur. Í upphafi árs sagði hann hins vegar af sér embætti af heilsufarsástæðum, en hann hafði þá skömmu áður gengið undir hjartaaðgerð. Inga tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra en Ragnar Þór Ingólfsson tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra.

Sjá einnig:

Guðmundur Ingi Kristinsson segir sig úr Flokki fólksins vegna trúnaðarbrests

„Guðmundur Ingi ber við trúnaðarbresti,“ segir Sigurður Kári. „Ég á erfitt með að sjá að sá trúnaðarbrestur geti falist í einhverju öðru en svikum af þessu tagi. Varla er trúnaðarbresturinn málefnalegur fyrst maðurinn segist ætla að styðja ríkisstjórnina áfram.“

Hlýtur að koma brátt fram

Bendir Sigurður Kári á að Guðmundur Ingi hafi verið dyggasti og traustasti stuðningsmaður Ingu Sæland í gegnum þykkt og þunnt. Hann hafi byggt upp flokkinn með henni.

Guðmundur Ingi var einn af þeim fjórum sem náðu fyrst inn á þing fyrir Flokk fólksins árið 2017. Hinir voru Inga sjálf og svo Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson. En hinir tveir síðarnefndu voru reknir úr flokknum eftir að hinar svokölluðu Klaustursbar upptökur voru gerðar opinberar. Lengi vel voru Inga og Guðmundur Ingi því einu þingmenn flokksins.

„Úrsögn af þessu tagi er mjög óvenjuleg í öllum skilningi,“ segir Sigurður Kári að lokum. „Hin raunverulega ástæða úrsagnarinnar hlýtur að koma fram áður en langt um líður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon