fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. febrúar 2026 18:30

Steinunn og Jacques. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ásmundsdóttir, rithöfundur, ljóðskáld og blaðamaður, ákvað að fylgja hjartanu þegar Jacques maðurinn sem hún kynntist og varð ástfangin af fyrir 40 árum síðan kom aftur inn í líf hennar. Eins og oft vill verða þá hafði lífið aðrar fyrirætlanir þegar þau kynntust og skildust þau að, en fundu hvort annað á ný fyrir fjórum árum.  Í dag giftu þau sig, tveimur dögum fyrir sextugsafmæli Steinunnar og innan skamms flytur hún búferlum til Frakklands til eiginmannsins heittelskaða.

Í hjartnæmri færslu sem er efni í rómantíska kvikmynd rekur Steinunn ástarsögu þeirra, en þess má geta að fyrir þremur árum gaf Steinunn út bók um sögu þeirra.

„Ástin ríður ekki við einteyming, það hef ég reynt á eigin skinni. Þrátt fyrir að hafa lýst því yfir, hátt og í hljóði, að ég ætlaði aldrei aftur að vera í sambandi né gifta mig, heldur eiga líf mitt ein og sjálf það sem eftir væri, gifti ég mig í dag í annað sinn, 59 ára gömul, yfir mig ástfangin og er að flytja búferlum til Frakklands þar sem ég ætla að verja síðasta lífskaflanum með manninum mínum.“

Kynntust árið 1986 þegar leiðtogafundurinn var í Höfða

Steinunn rekur aðdragandann að kynnum þeirra sem er dálítið sérstakur.

Steinunn var tvítug haustið 1986 þegar leiðtogafundur Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhaíls Gorbatsjev, leiðtoga Sovétríkjanna, var haldinn í Höfða í Reykjavík. „Sá fundur átti þegar fjær dró eftir að hafa úrslitaáhrif á afvopnun í heiminum og endalok kalda stríðsins. En það dugði að vísu ekki mjög lengi, eins og nútíminn sýnir glöggt.“

Mikill fjöldi fjölmiðlafólks mætti til Íslands alls staðar að úr heiminum til að flytja fréttir af leiðtogafundinum og mynda hann. Steinunn var fengin til að vera leiðsögumaður fréttaljósmyndara frá AFP, frönsku fréttaveitunni, til að sýna honum Reykjavík gegnum augu heimamanneskjunnar.

„Sem ég og gerði, en ekki nóg með það heldur felldum við hugi saman, ég og þessi maður; Jacques. Við skrifuðumst í kjölfarið á um árabil og létum okkur dreyma um að vera saman. En tíu ára aldursmunur og sú staðreynd að hann átti þá ungan son, reyndist mér hindrun sem ég fékk ekki yfirstigið, svo ung sem ég var. Samband okkar trosnaði og týndist smám saman á þeim fimm árum sem við áttum samskipti, og var okkur þó báðum þvert um geð og beinlínis harmrænt. Svo hélt lífið bara áfram, með öllum sínum tilbrigðum, öðrum ástum og  barneignum, á báða bóga. Í áratugi.“

Steinunn rekur að næstum fjörutíu ár hafi liðið. Jacques hélt að Steinunn væri búin að gleyma honum og hún hélt sannarlega að hann væri búinn að steingleyma henni.

„En ég gleymdi honum aldrei, lúrði á bréfunum frá honum og fjölmörgum ljósmyndum sem hann sendi mér á þeim fimm árum sem við héldum sambandi. Og það var gagnkvæmt. Við veltum vöngum yfir hvort öðru alla tíð.“

Sú hugsun fór að sækja enn meira á Steinunni að hún yrði að skrifa um leiðtogafundinn  í Höfða, segja frá öllu umstanginu í Reykjavík og hverjar lyktir fundarins urðu til langs tíma. Varð þörfin til að skrifa söguna enn brýnni þegar stórveldin fóru svo að ýfa sig aftur og kjarnorkuvopn urðu á ný vogarafl í samskiptum ríkja.

„Og ekki síst, að segja ástarsöguna sem átti sér stað með fram, sögu franska ljósmyndarans og ungu Reykjavíkurstúlkunnar. Um það sem hefði getað orðið en varð þá ekki.

Ég tók mér tvö ár í að skrifa bókina Ástarsögu, að mestu sannsögulega en með skáldlegum viðbótum og útúrdúrum, og sendi hana frá mér árið 2022 sem rafbók og hljóðbók sem ég las sjálf inn, og síðan prentaða útgáfu vorið 2023. Bókin er eins konar sögulegur spegill á þessa tíma, ásamt því að vera … já, einmitt ástarsaga.“

Reyndi mikið til að hafa upp á Jacques 

Þar sem draumaprins Steinunnar, Jacques, var nú kominn í bók segir hún að henni hafi ekki fundist stætt á öðru en að láta hann vita af því og segist hún hafa reynt mikið til að hafa uppi á honum.

„En allt kom fyrir ekki, hann var hvergi að finna, hvorki á samfélagsmiðlum né annars staðar. Bara sjötíu þúsund fréttaljósmyndir hans á helstu ljósmyndaveitum heims en ekki ein einasta mynd af honum sjálfum, hvað þá aðrar upplýsingar. Svo ég gafst upp og við það sat.“

Á meðan að Steinunn skrifaði ástarsögu þeirra hafði söguhetja hennar, Jacquez, farið á eftirlaun frá AFP í París árið 2019, eftir erilsamt líf fréttaljósmyndarans í hringiðu atburða vítt og breitt um heiminn, og keypt sér hús í sveitafegurðinni í suðvesturhluta landsins til að búa sér rólegt og íhugult líf einsetumanns og náttúruunnanda.

„Dálítið eins og Thoreau á þar síðustu öld, fjarri firringu og hamagangi nútímalífsins. Eða Candide Voltaires við að rækta garðinn sinn. Og varð stöðugt sannfærðari um nokkuð sem hafði nagað hann um árabil; að hann ætti ólokið að komast að raun um hvar íslenska draumastúlkan hans síðan í gamla daga héldi sig, hvað hún væri að gera og hvort hún væri honum fullkomlega afhuga eftir öll þessi ár. Hann yrði að fá svör við þessu til að geta á heilum sér tekið. Hafði reyndar ferðast til Íslands 1997 og þá reynt að svipast um eftir mér, án árangurs, enda var ég þá búsett á Egilsstöðum. En ævinlega sankað að sér öllu lesefni um Ísland sem hann komst yfir og verið með landið í bakþankanum alla tíð. Svo að dag einn, fyrir ekki löngu síðan, komu skilaboð frá Jacques í gegnum Linkedn, þar sem hann spurði feimnislega hvort ég myndi nokkuð eftir honum.“

Svo sannarlega mundi Steinunn eftir honum Jacques og segir hún hinar gömlu ástir hafa tekið sig upp aftur af firnakrafti, en nú milli tveggja þroskaðra einstaklinga með langt líf og reynslu að baki.

„Síðan þá höfum við ekki hætt að tala saman. Og ætlum aldrei að hætta að tala saman aftur. Eftir tíðar heimsóknir og samveru, ásamt löngum og óþægilegum fjarverutímabilum, höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur. Ástfangin sem aldrei fyrr ætlum við að verða gömul saman og leiðast lífsveginn til enda. Við finnum að ástin hvílir á gömlum merg og er í rauninni fyrsta og síðasta ást okkar, myndar heilan hring um líf okkar.“

Gift tveimur dögum fyrir sextugsafmæli Steinunnar

Í dag giftu Steinunn og Jacques sig í látlausri athöfn hjá sýslumanni og skáluðu í kampavíni ásamt börnum sínum hjá elskulegri mágkonu Steinunnar. Eftir tvo daga heldur Steinunn upp á sextugsafmæli og ætla nýgiftu hjónin því að halda brúðkaups- og afmælisveislu á morgun með fjölskyldu og vinum.

„Brátt set ég sjálfa mig á eftirlaun, pakka mínu hafurtaski og flýg sextug suður á bóginn eins og farfuglarnir. Ég sest að í frönsku sveitinni hjá Jacques mínum, stunda þar ritstörf, iðka langar gönguferðir í fegurð landslagsins, nýt ferðalaga, menningar og lista, og hægláts og kjarnmikils mannlífs. Að ég tali nú ekki um hinn dásamlega franska mat.

Enginn veit sína ævina fyrr en öll er, eins og þar stendur. Ævintýrin gerast enn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa