

Sjúkratryggingar niðurgreiddu mun færri efnaskiptaaðgerðir á erlendum sjúkrahúsum árið 2025 en árin þar á undan. Þetta kemur fram í svari Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur á Alþingi.
Efnaskiptaaðgerðir eru einnig kallaðar offituaðgerðir. Það er svokölluð magaermi, magahjáveita eða mini-hjáveita.
Eins og kemur fram í svarinu voru aðgerðir á árinu 2025 149 talsins og hljóðaði kostnaður Sjúkratrygginga upp á rúmlega 117 milljónir króna áður en endanlegur kostnaður liggur fyrir. Hafa ber í huga að þetta eru þó aðeins tölur fram í nóvembermánuð.
Á árunum áður voru aðgerðirnar mun fleiri. Það er 231 árið 2023 og 246 árið 2024, með kostnað upp á 253 og 263 milljónir króna.
Til að einstaklingur eigi rétt á að fá niðurgreidda aðgerð erlendis þarf hann að uppfylla ákveðin skilyrði. Það er að líkamsþyngdarstuðull sé yfir 40 kg/m2 eða á bilinu 35 til 39,9 með þekktum alvarlegum fylgikvillum. Viðkomandi skuli hafa lokið undirbúningsmeðferð á Reykjalundi.
Hafa ber í huga að notkun þyngdarstjórnunarlyfja hefur aukist mjög mikið á Íslandi líkt og víða annars staðar.