fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 15:30

Allsherjarbóluefni er í þróun. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn telja sig komna nær því en áður að búa til bóluefni sem geti veitt vörn geng kvefi, ofnæmi, flensu og COVID-19. Bóluefnið gæti komið í stað nokkurra bóluefna, sem eru oft gefin að hausti gegn öndunarfærasjúkdómum og gæti veitt vörn gegn nýjum faraldsveirum.

The Independent skýrir frá þessu og segir vísindamenn hjá Stanford Medicine í Bandaríkjunum hafi gert tilraunir á músum með bóluefni sem veitir vörn gegn mörgum öndunarfæraveirum og bakteríum sem valda blóðsýkingum.

Bóluefnið er gefið í formi nefúða og veitir lungunum breiða vörn í nokkra mánuði.

Ef bóluefnið verður þróað fyrir fólk, þá getur það komið í stað fjölda bóluefna, sem eru gefin ár hvert gegn öndunarfærasjúkdómum, og gæti veitt vernd gegn nýjum faraldsveirum.

„Ég held að við séum komin með allsherjarbóluefni gegn margvíslegum öndunarfærasjúkdómum,“ sagði Bali Pulendran, aðalhöfundur rannsóknarinnar.

„Ímyndaðu þér að fá nefúða á haustin sem veitir vernd gegn öllum öndunarfæraveirum, þar á meðal COVID-19, inflúensu og venjulegu kvefi, sem og lungnabólgu af völdum baktería og snemmbúnu vorofnæmi,“ sagði hann einnig og bætti við að það muni gjörbreyta læknisfræðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt