

Er það minn eða þinn stríðsjeppi? Um þetta var tekist í dómsmáli á Vestfjörðum þar sem deilt var um eignarhald á fornbíl af gerðinni Jeep Willys 1946. Málið átti sér langa forsögu, enda bifreiðin komin töluvert til ára sinna.
Tveir menn tókust á í málinu. Annars vegar maður sem taldi sig hafa verið eigandi bifreiðarinnar óslitið frá árinu 1974 og hins vegar maður sem taldi sig hafa átt bifreiðina frá árinu 1985.
Stefnandi lýsti því svo að hann hafi keypt bifreiðina árið 1974, gert hana upp, byggt á hana hús og haft hana til eigin nota. Árið 1982 hafi hann ákveðið að lána móðurbróður sínum bifreiðina en þaðan hafi hún svo endað á Minjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti. Taldi stefnandi að bifreiðin hefði verið lánuð til safnsins og gerði því enga athugasemd við gjörninginn. Hann framvísaði skráningu bifreiðarinnar úr ökutækjaskrá Creditinfo sem sýndi óslitið eignarhald hans á jeppanum.
Víkur þá sögunni að stefnda. Hann lýsti því svo að hann hafi keypt bifreiðina af móðurbróður stefnanda árið 1985. Markmiðið var að varðveita sögulegt gildi bifreiðarinnar og hafði stefndi því tekið bílinn af númerum og ekki haft afnot af henni. Hann hafi svo haft bílinn í sínum vörslum allar götur síðan. Stefndi sagðist hafa verið í góðri trú um að hann hafi keypt bifreiðina af lögmætum eiganda. Móðurbróðirinn hafi litið á bifreiðina sem sína eigin, greitt af henni iðgjöld og fært hana til skoðunar. Plaggið frá Creditinfo geti ekki talist trúverðugt sönnunargagn þar sem þar sé fullyrt að bíllinn hafi verið nýskráður árið 1899 sem augljóstlega standist enga skoðun.
Stefndi bætti svo við að jafnvel þó að móðurbróðirinn hefði ekki haft nokkra heimild til að selja bílinn þá hafi stefndi haft bílinn í sínum vörslum óslitið í rúm 40 ár og þar með öðlast eignarrétt með hefð, en hefðartími lausafjár sé 10 ár.
Dómari tók undir með stefnda. Samtímagögn frá árinu 1985 bendi eindregið til þess að móðurbróðirinn hafi litið á bifreiðina sem sína og þar með hafi stefndi mátt vera í góðri trú þegar kaupin fóru fram. Auk þess hafi stefnandi hvorki vitjað bifreiðarinnar né reynt að fá vörslur hennar áratugum saman, eftir að hefðartíminn var löngu liðinn og eftir að móðurbróðirinn var látinn. Þar með sé ekki hægt að spyrja móðurbróðurinn hvort bifreiðin hafi verið seld, hvort hann hafi litið á sig sem eiganda eða hvort hann hafi lánað bílinn til Minjasafnsins. Því sé ákveðin óvissa með þann þátt en á sama tíma alveg öruggt að skilyrði hefðar séu uppfyllt.
Stefndi var því sýknaður og stefnandi situr uppi með það súra epli að verða af fornbílnum og þarf hann auk þess að borga stefnda 1,4 milljónir í málskostnað.
Sjá einnig: Tekist á um 78 ára gamlan Willys jeppa – Heimtaði bílinn tæplega hálfri öld síðar
Willys byrjaði að framleiða jeppa árið 1941 fyrir bandaríska herinn og er talið að orðið jeppi, eða Jeep, eigi rætur að rekja til framleiðslunnar. Willys hafi kallað bílinn GP sem var stytting á General Purpose, eða alhliða notkun, og þaðan hafi gælunafnið Jeep orðið til. Eftir stríðið vildi fyrirtækið koma bílnum í almenna sölu og var hann þá einkum hugsaður sem landbúnaðartæki. Almenningur tók þessu þó fagnandi og varð notkunin meira alhliða en fyrirtækið reiknaði með og varð kveikjan að jeppasmíði annarra framleiðenda.