fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Bandaríski sendiherrann tekinn á teppið vegna ummæla í kjölfar morðs

Pressan
Mánudaginn 23. febrúar 2026 15:30

Quentin Deranque var drepinn þann 12. febrúar síðastliðinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franski utanríkisráðherrann, Jean-Noël Barrot, hefur tilkynnt að hann muni kalla Charles Kushner, sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi, á teppið í kjölfar ummæla bandarískra stjórnvalda um morðið á franska hægrimanninum Quentin Deranque.

Málið hefur valdið pólitískri spennu innan Frakklands og vakið alþjóðlega athygli.

Deranque, sem var 23 ára, lést af völdum höfuðáverka eftir átök sem brutust út í Lyon þann 12. febrúar, á jaðri mótmæla gegn stjórnmálamanni úr vinstriflokknum France Unbowed.

Samkvæmt yfirvöldum voru átökin milli Deranque og einstaklinga sem sagðir eru tengjast róttækri vinstrihreyfingu.

Bandaríska sendiráðið í París og skrifstofa bandaríska utanríkisráðuneytisins um hryðjuverkavarnir sögðust fylgjast grannt með málinu. Þá kom fram í færslum þeirra á samfélagsmiðlinum X að „ofbeldisfull róttæk vinstristefna“ væri á uppleið og að líta þyrfti á hana sem ógn við almannaöryggi.

Stjórn Donalds Trump fordæmdi atburðinn og kallaði hann „hryðjuverk“, sem vakti hörð viðbrögð frá frönskum stjórnvöldum.

Barrot sagði í viðtali við franska fjölmiðla að frönsk stjórnvöld höfnuðu því að harmleikurinn yrði nýttur í pólitískum tilgangi. Utanríkisráðuneytið hefur ekki gefið upp hvenær fundurinn með Kushner fari fram en hann faðir Jared Kushner, tengdasonar Trumps.

Málið hefur aukið spennu innan Frakklands á viðkvæmum tíma, en forsetakosningar fara fram á næsta ári. Yfir 3.000 manns komu saman í minningargöngu í Lyon um helgina og var öflug öryggisgæsla viðhöfð af ótta við frekari átök. Emmanuel Macron forseti hvatti til stillingar og ábyrgðar í kjölfar atburðanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér