fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kona sem ók farþegarútu dæmd fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi – Sofnaði undir stýri og bíllinn valt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 10:00

Héraðsdómur Norðurlands vestra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðastliðinn föstudag var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Norðurlands vestra yfir konu sem ákærð var fyrir umferðarlagabrot og líkamsmeiðingar af gáleysi í tengslum við umferðarslys í september árið 2023.

Þann dag ók konan hópferðabíl frá Keflavíkurflugvelli norður í land og sofnaði við aksturinn. Missti hún stjórn á bílnum sem valt á hliðina, á Norðurlandsvegi við Brekku í Húnabyggð, með þeim afleiðingum að farþegar slösuðust, þrír nokkuð alvarlega. Einn handleggsbrotnaði, annar hlaut opin sár á höfði og áverka á heila og þriðji farþeginn hlaut brot á hnéskel, kramningsáverka, opin sár á hægra fæti og brot á hálsliðum. Aðrir farþegar hlutu mar og skrámur.

Konan játaði sök fyrir dómi. Samkvæmt sakarvottorði gekkst hún undir sektargerð vegna umferðarlagabrots árið 2015 en hefur að öðru leyti ekki gerst brotleg við refsilög. Tekið var tillit til þess, sem og til skýlausrar játningar konunnar við ákvörðun refsingar. Hins vegar segir í dómnum: „Á hinn bóginn verður ekki framhjá því litið að sem ökumaður hópferðabifreiðar bar hún ríka aðgæsluskyldu og brást þeirri skyldu með þeim afleiðingum sem í ákæru greinir.“

Þótti hæfileg refsing vera 30 daga skilorðsbundið fangelsi og svipting ökuréttar í þrjá mánuði.

Konan þarf jafnframt að greiða 1.365.108 krónur í málskostnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“