fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hinn fjórtán ára Hákon Þór bjargaði heimili fjölskyldunnar í Selási – „Ég er ólýsanlega stolt af honum“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 21. febrúar 2026 16:00

Hákon vaknaði við reykskynjarann og sprautaði á rafmagnstöfluna sem var logandi. Myndir/aðsendar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hetjudáð 14 ára pilts gerði það að verkum að ekki fór verr þegar eldur kom upp á heimili hans í Landsveit á Suðurlandi í gær. Móðir hans brýnir fyrir fólki að hafa virka reykskynjara og slökkvitæki á heimilinu. Það geti bjargað mannslífum og eignum.

Í gær kom upp eldur út frá rafmagnstöflu á bænum Selási í Landsveit. Birna Sólveig Kristjónsdóttir, íbúi þar greinir frá málinu á samfélagsmiðlum.

„Mig langar að minna alla á hversu nauðsynlegt það er að hafa virka reykskynjara og slökkvitæki á heimilinu,“ segir Birna. Það var 14 ára sonur hennar, Hákon Þór, sem kom til bjargar þegar eldurinn kom upp.

„Í gær lentum við í því að það kviknaði í rafmagnstöflunni hjá okkur. Til allrar lukku var starfsdagur í skólanum og Hákon var heima, sofandi. Það má með sanni segja að hann bjargaði heimilinu okkar,“ segir hún.

Hringdi í Neyðarlínu og spreyjaði á eldinn

Reykskynjarinn fór í gang með miklum látum og vakti Hákon. Hann fór inn í þvottahúsið þar sem allt logaði og hafði fyllst af reyk. Hákon náði í slökkvitækið og spreyjaði yfir eldinn og hringdi í Neyðarlínuna.

„Viðbrögð hans voru alveg ótrúleg af þessum dreng okkar . Ég er ólýsanlega stolt af honum,“ segir Birna. Hann sé ástæða þess að fjölskyldan eigi enn þá heimili.

Eins og gefur að skilja eru töluverðar skemmdir á húsnæðinu. Það er skemmdir á rafmagni, vatnslögnum og húsið allt atað í sóti eftir reykinn og reykræstingu slökkviliðsins.

Birna ítrekar að atburðarásin hafi verið mjög hröð. Mínútur og jafn vel sekúndur skipta máli.

„Þetta gerðist allt á örfáum mínútum – ég fór út aðeins tuttugu mínútum áður,“ segir hún.

Þakklæti

Þá segist hún vera afar þakklát fyrir aðstoðina frá öðru fólki. Meðal annars iðnaðarmenn sem komu til að laga skemmdir.

„Við erum líka svo þakklát fyrir allt fólkið í kringum okkur sem kom strax til hjálpar Rafvirkinn, píparinn og smiðurinn Þeir unnu í streit örugglega í 12–13 klukkustundir til að koma rafmagninu og vatni á,“ segir Birna að lokum. Það mun taka lengri tíma að koma öllu í samt horf aftur.

„Hafið reykskynjara. Hafið slökkvitæki. Athugið þau reglulega. Þetta bjargar lífum— og heimili,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“