fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þeir sem krjúpi fyrir Trump muni fá að finna fyrir því þegar Demókratar komast aftur til valda

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 21. febrúar 2026 12:45

Susan Rice varaði fyrirtæki, háskóla og fjölmiðla við. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Susan Rice, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu Þjóðunum, varar fyrirtæki og aðra sem „krjúpa á kné“ fyrir Trump að Demókratar muni láta þau finna fyrir því þegar flokkurinn kemst aftur til valda.

„Ef þessi fyrirtæki halda að þegar Demókratarnir komist aftur til valda þá muni þeir leika eftir gömlu reglunum, fyrirgefa þeim fyrir allar uppsagnirnar og brotin á réttindum fólks þá er það alls ekki svo,“ sagði Rice í hlaðvarpinu Stay Tuned with Preet.

Rice, sem sat í stjórnum Barack Obama og Joe Biden, gagnrýnir harkalega þau fyrirtæki, háskóla, fjölmiðla og fleiri fyrir að haga sér með skammtímahagsmuni að leiðarljósi og beygja sig fyrir Trump. Býst hún við því að Demókratar vinni næstu þingkosningar og þá strax muni þessir aðilar byrja að þurfa að svara til saka fyrir gjörðir sínar.

„Fyrirtæki eru þegar byrjuð að fá að heyra að þau ættu að hafa skjölin sín á hreinu. Þau ættu að undirbúa sig undir lögsóknir. Ef þau hafa gert eitthvað rangt þá munu þau þurfa að svara til saka. Ef ekki þá gott hjá þeim,“ sagðir Rice. „Það verður ekki fyrirgefið og gleymt. Skaðinn er of mikill fyrir fólkið í Bandaríkjunum og þjóðarhagsmunina.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart