fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segir Braga skorta samúð, skilning og sjálfsgagnrýni – „Hvernig getur arkitekt kerfis verið óupplýstur um verstu afleiðingar þess?“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. febrúar 2026 13:00

Bragi Guðbrandsson og Unnar Þór Sæmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvernig getur arkitekt kerfis verið óupplýstur um verstu afleiðingar þess?“ 

spyr Unnar Þór Sæmundsson, einn þeirra sem vistaður var á Bakkakoti á barnsaldri, í grein sinni.

Unnar Þór lýsti reynslu sinni af Bakkakoti í þætti Kveiks á þriðjudag.

Sjá einnig: Lýsa hryllilegu ofbeldi Þóru í Bakkakoti – „Við erum brenndir og verðum alltaf brenndir“

Vísar Unnar Þór með orðum sínum í greininni til viðtals RÚV við Braga Guðbrandsson, fyrrum framkvæmdastjóra Barnaverndastofu til 24 ára, á miðvikudag. Í viðtalinu þvoði Bragi hendur sínar af Bakkakoti og sagðist aldrei hafa heyrt á það minnst fyrr en með fyrri þætti Kveiks sem birtur var 3. febrúar.

Hönnun kerfisins kjarni málsins

Í viðtalinu segist Bjarni sjálfur hafa hannað kerfið. Unnar Þór segir það ekki smávægilegt atriði heldur kjarna málsins.

„Ef barnaverndarkerfi er hannað með þeim hætti að ofbeldi geti átt sér stað árum saman án þess að upplýsingar berist til æðstu stjórnenda, þá er ekki nægjanlegt að vísa til þess að upplýsingaflæðið hafi brugðist. Þá verður að spyrja hvort kerfið hafi í raun verið byggt þannig að upplýsingarnar gátu einfaldlega ekki borist. Þá er það ekki tilviljun. Þá er það ekki „óheppilegt“. Þá er það niðurstaða. Þá hefur verið búið til kerfi þar sem ábyrgð er hönnuð til að stöðvast áður en hún nær toppnum.

Hvernig kerfi hannar maður þannig að sá sem ber mesta valdið ber jafnframt minnstu ábyrgðina?“

Kerfi sem verji sjálft sig betur en börnin

Vísar Unnar Þór til fyrri greinar sinnar þar sem hann sagði kerfið ekki bilað eða röð mistaka hafa valdið ástandinu heldur kerfið byggt á röngum forsendum.

„Kerfi sem ver sjálft sig betur en börnin sem það á að vernda. Kerfi þar sem traust er sjálfgefið inn á við, tortryggni beint út á við og gagnrýni túlkuð sem árás. Kerfi þar sem „enginn vissi“ er ekki afsökun, heldur innbyggð niðurstaða. Kerfi þar sem fullyrðingin „ég vissi ekki“ verður ekki undantekning heldur eðlilegur endapunktur.“

Unnar Þór segir viðtalið við Braga hafa staðfest þá mynd sem Unnar Þór dró upp í fyrri grein sinni.

„Þegar sá sem lýsir sér sem arkitekt kerfisins segist jafnframt ekki hafa vitað af alvarlegustu brotum innan þess, þá er það ekki afsökun heldur einkenni. Einkenni kerfis sem var ekki hannað með raunverulegt aðhald í huga, heldur með þeirri hugmynd að ábyrgð væri eitthvað sem mætti útvatna, frekar en axla.“

Unnar Þór segir þá hugmynd aldrei koma til greina að vandinn sé hönnun kerfisins. Þess í stað er vísað í umfang, flækjustig og aðstæður eins og kerfi verði til af sjálfu sér, óháð þeim sem móta þau.

Segir hann Braga tala um að samfélagið eigi að horfa til nútíðar og skoða hvernig við erum að standa okkur í dag. Spyr Unnar Þór því hvernig Stuðlar eru að stnda sig, hvernig staðan hafi verið með börn í fangaklefum í Hafnarfirði og hvernig meðferð barna er háttað.

Segir Braga skorta samúð, skilning og sjálfsgagnrýni

Unnar Þór segir skort Braga á samúð og skilning á alvarleika málsins ekki vera það sem veki mesta athygli í viðtali hans við RÚV. Það sem mesta athygli vekji er skortur Braga á sjálfsgagnrýni.

„Sú hugmynd virðist aldrei fá rými að vandinn kunni að vera sjálf hönnun kerfisins, ekki bara aðstæður, fjárskortur eða umfang. Það er skiljanlegt. Þegar fólk hefur byggt feril, orðspor og sjálfsmynd á því að hafa skapað kerfi sem átti að gera gott, þá er ótrúlega erfitt að horfast í augu við að kerfið hafi ekki bara brugðist heldur verið rangt hugsað frá upphafi.“

Segir Unnar Þór að kerfi séu afrakstur ákvarðana, ekki náttúrufyrirbæri.

„Þegar kerfi er hannað þannig að upplýsingarnar berast ekki upp, þá er ekki nóg að segja að þær hafi ekki borist. Þá verður að horfast í augu við að kerfið var ekki hannað til að þola sannleikann þegar hann var óþægilegur. Sú staðreynd að ofbeldi geti viðgengist innan kerfis án þess að „berast upp“ segir okkur eitthvað mun dýpra. Kerfið var aldrei byggt til að tryggja að sannleikurinn næði alla leið. Það var byggt til að virka, til að líta vel út, til að halda áfram. Bragi segir þetta í viðtalinu og bendir á að kerfið sé gott, það virki og það sé engin þörf á að brenna það til grunna.“

Kerfið ekki byggt með fórnarlömbin í huga

Segist Unnar Þór ósammála þeim orðum Braga og betra sé að brenna kerfið til grunna. Kerfið hafi ekki verið byggt með fórnarlömb þess í huga.

„Þegar kerfi er þannig upp byggt að þeir sem standa efst geta með sanni sagt að þeir hafi ekki vitað, þá er vandinn ekki einstaklingurinn sem segist ekki hafa vitað. Vandinn er kerfið sem gerði honum kleift að vera óupplýstur, gerði honum kleift að halda fjarlægð frá afleiðingum eigin ákvarðana. Og ef þeir sem hönnuðu kerfið geta ekki horfst í augu við þann veruleika, þá staðfestir það aðeins það sem fórnarlömbin hafa lengi vitað. Kerfið var ekki byggt með þau í forgangi.“

Segir Unnar Þór að þurfi að hugsa málið upp á nýtt, ekki dugi að laga sprungur eða bæta ferla. Markmið nýrrar hugsunar sé ekki að finna blóraböggla, heldur til að tryggja að ábyrgð, eftirlit og vernd séu ekki valkvæð hugtök heldur ófrávíkjanleg.

„Og þar liggur raunverulegi vandinn. Ekki í því að einhver vissi ekki, heldur í því að kerfið gerði honum kleift að vita ekki. Kerfi sem skilar þeirri niðurstöðu er ekki kerfi sem þarf að laga. Það er kerfi sem þarf að endurhugsa frá grunni. Því annars mun sama sagan endurtaka sig, með nýjum nöfnum, nýjum viðtölum, nýjum afsökunum og sömu setningunni. „Ég vissi ekki.““

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart