fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Júlíana tjáir sig um óhugnanlega atvikið á öskudag – „Það fyrsta sem ég hugsaði var, hvað ef?“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. febrúar 2026 11:30

Júlíana Sara Gunnarsdóttir í hlutverki sínu í sjónvarpsþáttunum vinsælu Venjulegt Fólk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og þáttarstjórnandi, birti Facebook-færslu í gær sem vakti landsathygli. Greindi hún frá því að ókunnugur maður hefði reynt að lokka dóttur hennar og vinkonur hennar upp í bíl hjá sér.

Vinkonurnar voru að koma úr öskudagsgleði úr Smáralind þegar miðaldra maður á gráum sendibíl stöðvaði þær. Reyndi hann að lokka þær inn í bílinn með því að segja þeim að hann ætti nóg af súkkulaði og nammi handa þeim. Þær neituðu og drifu sig heim til einnar þeirra.

Júlíana tjáði sig frekar um málið í viðtali á Bylgjunni í morgun.

„Dóttir mín hringir í mig og var grátandi. Mér var mjög brugðið vegna þess að ég var tiltölulega nýlega búin að heyra í henni og hún var þá í blússandi gír í Smáralindinni.“

Hún brunaði síðan á vettvang þar sem stúlkan var stödd. „Þegar hún segir mér þetta þá er mér mjög brugðið. Því það fyrsta sem ég hugsaði var: Hvað ef?“

Júlíana segist þakklát fyrir að dóttir hennar var ekki ein þegar þetta gerðist heldur voru stúlkurnar fjórar saman:

„Voru fjórar saman og ég þakka fyrir það, vegna þess að ég held að það sé mikið betra að vera í hóp heldur en að lenda í þessu einn.“

Þarf að fræða um hættur af þessu tagi

„Þær vissu hvað átti að gera og voru bara ekkert smá hugrakkar. Mér fannst líka bara svo mikilvægt að segja frá þessu vegna þess að það er þörf á þessari áminningu. Ég hugsaði nefnilega þegar þær voru að tala um þetta og voru að segja lögreglunni hvað gerst hafði, þá hugsaði ég að ég hefði getað verið duglegri að segja börnunum mínum, að brýna fyrir þeim hvar hættur leynast. Af því maður eðlilega býst ekki við því að þetta gerist þá er maður kannski ekki búin að fræða þau nógu mikið.“

Júlíana óskar þess að skólar taki upp fræðslu um hættur af þessu tagi. Aðspurð sagði hún að atvikið sitji í dóttur hennar og vinkonum hennar:

„Þetta er ennþá sjokk og hún var alveg mjög lítil í sér það sem eftir lifði dags. Og er minni í sér núna, þannig að þetta er eðlilega bara ennþá í þeim öllum og maður þarf að hlúa vel að þeim.“

Lögreglan rannsakar málið

Málið var tilkynnt til lögreglu en foreldrar allra stúlknanna sameinuðust í því eftir að þau höfðu áttað sig á því hvað gerðist. Segir hún að stúlkurnar hafi getað gefið lögreglu greinargóða lýsingu á ökumanninum og bílnum hans. Júlíana segist hins vegar ekki vita hver staðan er á rannsókn lögreglu núna.

Viðtalið við Júlíönu má hlusta á hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart