fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fasta fyrir háttatímann getur haft áhrif á heilbrigði hjartans

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slæmt hjartaheilbrigði eykur hættuna á að fólk fái meðal annars sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdóma. Margir hafa því á síðustu árum reynt að takmarka matarneyslu við ákveðna tíma dagsins með því að fasta á öðrum tímum.

Rannsóknir hafa aðallega beinst að því hversu lengi fólk fastar en minni að því hvenær það borðar og áhrif þess á svefninn.

En í nýrri rannsókn var sjónunum beint að tengslunum á milli máltíða og dægurryþma líkamans. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Arteriosclerosis, Thrombosis, and Vascular Biology.

Rannsóknin leiddi í ljós að blóðþrýstingur þátttakendanna var lægri á nóttunni ef þeir hættu að borða að minnsta kosti þremur klukkustundum fyrir háttatíma.

Blóðþrýstingurinn féll um 3,5% og hjartslátturinn var 5% hægari. Líkaminn hafði einnig betri stjórn á blóðsykrinum yfir daginn.

Daniela Grimaldi, hjá Northwestern háskólanum, segir að það geti skipt máli að laga föstutímann að náttúrulegum svefnryþma líkamans.

Rannsóknin stóð yfir í sjö og hálfa viku. 39 manns á aldrinum 36 til 75 ára tóku þátt í henni. Allir þátttakendurnir voru í yfirþyngd. Þeim var skipt í tvo hópa og var föstutími þeirra mismunandi.

Vísindamennirnir telja að með því að beina sjónunum að föstutímanum sé hægt að bæta heilbrigði hjartans. Þeir segja einnig að út frá stærð rannsóknarinnar og tímalengd hennar sé ljóst að þörf sé á stærri rannsóknum á þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér