fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hæstiréttur staðfesti nauðgunardóm yfir Ívari Gísla Vignissyni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 16:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir Ívari Gísla Vignissyni fyrir nauðgun.

Ívar var ákærður fyrir að hafa árið 2019 með ofbeldi og ólögmætri nauðung haft samræði og önnur kynferðismök við konu án hennar samþykkis, með því að notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum áhrifa áfengis og svefndrunga, og þannig beitt hana ólögmætri nauðung.

Ívar neitaði sök og héraðsdómur sýknaði hann en Landsréttur taldi hins vegar framburð konunnar mun trúverðugri en framburð hans. Framburður hennar hefði verið stöðugur og skýr um þau atriði sem máli skiptu og fengi nægilegan stuðning í öðrum gögnum til að hann yrði lagður til grundvallar sakfellingu. Taldi rétturinn hafið yfir skynsamlegan vafa að Ívar hefði gerst sekur um þá háttsemi sem kom fram í ákæru að því frátöldu að hann yrði sýknaður af því að hafa stungið fingri inn í leggöng brotaþola.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess verulega dráttar sem orðið hefði á meðferð málsins. Refsing Ívars var ákveðin fangelsi í tvö ár en þar af var 21 mánuður skilorðsbundinn.

Sjálfkrafa áfrýjunarleyfi

Ívar átti sjálfkrafa rétt á því að Hæstiréttur tæki mál hans fyrir þar sem hann hafði verið sýknaður í héraði en sakfelldur í Landsrétti. Niðurstaðan var hins vegar sú að sektardómur Landsréttar yfir honum var staðfestur.

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump