fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Tveir ICE-fulltrúar sendir í leyfi og sakaðir um að bera ljúgvitni eftir að innflytjandi var skotinn í fótinn

Pressan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 15:30

NEW YORK, NEW YORK - JUNE 6: An ICE agent monitors hundreds of asylum seekers being processed upon entering the Jacob K. Javits Federal Building on June 6, 2023 in New York City. New York City has provided sanctuary to over 46,000 asylum seekers since 2013, when the city passed a law prohibiting city agencies from cooperating with federal immigration enforcement agencies unless there is a warrant for the person's arrest.(Photo by David Dee Delgado/Getty Images)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um viku eftir að tolla- og innflytjendaeftirlitið ICE skaut Renee Good til bana átti annað atvik sér stað í Minneapolis. Þar kom til átaka milli ICE og tveggja innflytjenda frá Venesúela sem endaði með því að ICE skaut annan innflytjendann, Julio Sosa-Celis, í fótinn. Nú eru tveir ICE-fulltrúar komnir í leyfi vegna málsins en bandaríska dómsmálaráðuneytið segir fulltrúana hafa borið ljúgvitni í málinu.

Heimavarnaráðuneytið sem fer með málefni ICE sagði í yfirlýsingu eftir atvikið að fulltrúar hefðu haft afskipti af Sosa-Celis við umferðarstöðvun. Sosa-Celis hafi þó reynt að flýja af vettvangi og síðar veitt mótspyrnu þegar fulltrúar ICE reyndu að handtaka hann. Hafi hann ráðist gegn fulltrúa ICE með skóflu eða kústskafti og fulltrúinn þá skotið af vopni sínu í sjálfsvörn.

Sosa-Celis lýsir atvikum með öðrum hætti. Hann hafi verið heima þegar hann fékk símtal frá frænda sínum, Alfredo Alejandro Aljorna. Aljorna var sendill fyrir DoorDash og veitti því eftirtekt að ICE væri að veita honum eftirför. Hann hafi því hringt heim til að vara fjölskyldu sína við. Aljorna hafi svo misst stjórn á bíl sínum vegna hálku og flúið hlaupandi frá ICE. Sosa-Celis hafi beðið frænda síns í dyragættinni og eftir að Aljorna var kominn inn hafi þeir lokað hurðinni og reynt að læsa þegar ICE-fulltrúi skaut Sosa-Celis í fótinn í gegnum útidyrnar. Hvorugur þeirra hafi verið vopnaður og hvorugur hafi veist að fulltrúum ICE.

Eftir fyrstu yfirlýsingu heimavarnaráðuneytisins fóru að renna tvær grímur á starfsmenn dómsmálaráðuneytisins eftir að upptökur af atvikinu voru skoðaðar. Það væri ekki annað að sjá en að lýsing innflytjendanna tveggja ætti við rök að styðjast, en það þýddi að ICE-fulltrúarnir hefðu ekki haft nokkuð tilefni til að grípa til vopna. Tveir ICE-fulltrúar sem áttu hlut að málinu höfðu þó tekið undir lýsingu heimavarnaráðuneytisins eftir að hafa unnið drengskapsheit. Fulltrúarnir hafa nú verið sendir í leyfi meðan mál þeirra er til rannsóknar en líklegt þykir að þeir hafi borgið ljúgvitni gegn betri vitund.

Sosa-Celis og frændi hans Aljorna höfðu báðir verið ákærðir fyrir brot gegn valdstjórninni en þær ákærur hafa nú verið felldar niður.

„Þetta var með öllu ónauðsynleg valdbeiting og fulltrúi ICE var að skálda um staðreyndir til að réttlæta það,“ segir lögmaður Aljorna í samtali við CNN. Miðillinn greinir frá því að mál innflytjendanna tveggja sé eitt dæmi af mörgum þar sem heimavarnaráðuneytið hafi hlaupið á sig með því að birta yfirlýsingar fljótlega eftir atvik máls, sem reynast svo við nánari skoðun ekki eiga við rök að styðjast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér