fbpx
Miðvikudagur 11.febrúar 2026
433Sport

Breiðablik niðurlægt í Svíþjóð

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einvígi Breiðabliks og Häcken í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna virðist í raun ráðið eftir fyrri leik liðanna í Svíþjóð í kvöld. Sænska liðið reyndist mun sterkari aðilinn og vann afar öruggan sigur gegn Blikum sem stilltu upp breyttu liði undir stjórn nýs þjálfarateymis.

Breiðablik hafði áður slegið út dönsku meistarana Fortuna Hjörring, en síðan þá hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópnum og þjálfaraskipti. Ian Jeffs stýrði liðinu í fyrsta sinn í keppnisleik.

Blikar héldu í við Häcken fyrsta stundarfjórðunginn en eftir það opnaðist vörn þeirra. Heimakonur skoruðu fimm mörk í fyrri hálfleik og var staðan 5-0 í leikhléi. Thelma Karen Pálmadóttir skoraði þá sitt fyrsta mark fyrir Häcken, en Fanney Inga Birkisdóttir stóð í marki sænska liðsins.

Häcken bætti svo við tveimur mörkum í seinni hálfleik. Herdís Halla Guðbjartsdóttir varði þó vítaspyrnu og kom í veg fyrir áttunda markið.

Seinni leikurinn fer fram á Kópavogsvelli eftir viku þar sem Blikar vonast til að sýna betri frammistöðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Svona verður meistari meistaranna

Svona verður meistari meistaranna
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Munu þess vegna aðeins ráða mann til skamms tíma

Munu þess vegna aðeins ráða mann til skamms tíma
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sjáðu viðbrögð hins hárprúða stuðningsmanns þegar ljóst varð að draumurinn um klippingu myndi ekki rætast

Sjáðu viðbrögð hins hárprúða stuðningsmanns þegar ljóst varð að draumurinn um klippingu myndi ekki rætast
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Lewandowski með tilboð á borðinu

Lewandowski með tilboð á borðinu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fjölskyldufaðir lést án þess að ná að kveðja – „Því miður komu þær degi of seint“

Fjölskyldufaðir lést án þess að ná að kveðja – „Því miður komu þær degi of seint“
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin
433Sport
Í gær

Annar landsliðsmaður dregur sig úr hópnum

Annar landsliðsmaður dregur sig úr hópnum