fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Salah sagður hafa gefið grænt ljós – Verðmiðinn ekki svo hár

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mohamed Salah er áfram orðaður við brottför frá Liverpool í sumar.

Samkvæmt Foot Mercato hefur Egyptinn gefið umboðsmönnum sínum grænt ljós á að hefja viðræður við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu. Félagið hefur lengi haft áhuga á Salah og bauð meðal annars 150 milljónir punda í hann árið 2023, tilboði sem Liverpool hafnaði.

Salah skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í apríl á síðasta ári, en nú virðist staðan hafa breyst. Talið er að hann sé mjög opinn fyrir félagaskiptum. Talað er um að Liverpool vilji aðeins um 26 milljónir punda fyrir hann í sumar, ári áður en samningur hans rennur út.

Al-Ittihad missti bæði Karim Benzema og N’Golo Kante í janúar og vill stóra stjörnu í sumar í staðinn.

Salah hefur auðvitað verið hvað besti leikmaður Liverpool síðan hann kom 2017 en svo virðist sem farið sé að hægjast á honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Heimsfrægur áhrifavaldur kemur öllum á óvart með tilkynningu sinni

Heimsfrægur áhrifavaldur kemur öllum á óvart með tilkynningu sinni
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telja sig vel geta skákað Liverpool í sumar

Telja sig vel geta skákað Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Potter gerir langtímasamning

Potter gerir langtímasamning
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Horfa til Chelsea ef þeir komast ekki í Meistaradeildina

Horfa til Chelsea ef þeir komast ekki í Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arsenal leiðir kapphlaupið – Vilja fleiri félög að borðinu til að hækka verðmiðann

Arsenal leiðir kapphlaupið – Vilja fleiri félög að borðinu til að hækka verðmiðann
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið